Innlent

Stjórn LH harmar atburðarásina

Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar
Frá Landsmóti hestamanna á Hellu 2014.
Frá Landsmóti hestamanna á Hellu 2014. vísir/bjarni þór
Fráfarandi stjórn Landssambands hestamanna (LH) vill koma því á framfæri að það hafi verið sameiginleg ákvörðun fráfarandi stjórnar að segja af sér þinginu um helgina í framhaldi af afsögn formannsins Haralds Þórarinssonar. Þeir harmi þessa atburðarás og í ljósi stöðunnar telji stjórnin þetta rétta ákvörðun. Þetta kemur fram í tilkynningu frá LH.

Landsþingi Landssambands hestamanna (LH) var frestað um síðustu helgi og verður framhaldið þann 8. nóvember næstkomandi. Ástæða þess er að formaður LH sagði af sér á fundinum sem og öll stjórn sambandsins vegna deilna um landsmótsstað árið 2016.

„Ákveðið var að koma hreint fram og heiðarlega fyrir Landsþing og draga til baka viljayfirlýsingu við Gullhyl ehf. um að halda landsmót hestmanna árið 2016. Með því gerðum við ráð fyrir því að fá málefnalegar umræður um landsmót hestamanna og framtíð þeirra. Svo varð ekki,“ segir í tilkynningunni.

Stjórnin taldi það skynsamlegast að draga viljayfirlýsingu við Gullhyl til baka og færa mótið á þann stað sem hún telur að mót á borð við landsmót þarfnist. Því vilji stjórnin árétta að engin lög eða reglur hafi verið brotnar af þeirra hálfu.

„Umræðan sem orðið hefur innan sem utan hreyfingarinnar í kjölfar þessa, er okkur hestamönnum ekki til framdráttar.  Ósannindi og ærumeiðingar hafa átt sér stað í garð fyrrum formanns og stjórnarmanna og er það miður. Við viljum ítreka það að við höfum unnið með hagsmuni heildarinnar að leiðarljósi og vonum að svo verði einnig hjá þeim sem taka við,“ segir í tilkynningunni.


Tengdar fréttir

Skagfirðingar segja sig hafa verið svikna

Formaður Landssambands hestamanna (LH) sagði af sér á landsþingi sambandsins um síðustu helgi. Miklar deilur eru um staðsetningu landsmóts árið 2016. "Stjórn LH hefur ekki unnið af heilindum,“ segir Jónína Stefánsdóttir, formaður Stíganda.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×