Viðskipti innlent

Stjórn FKA fagnar ráðningu nýs bankastjóra Landsbankans

Stjórn FKA. Á myndinni eru þær; Þórdís Lóa Þórhallsdóttir, Rakel Sveinsdóttir,, Áshildur Bragadóttir, Danielle Neben, Kolbrún Hrund Víðisdóttir, Anna Þóra Ísfold og Herdís Jónsdóttir.
Stjórn FKA. Á myndinni eru þær; Þórdís Lóa Þórhallsdóttir, Rakel Sveinsdóttir,, Áshildur Bragadóttir, Danielle Neben, Kolbrún Hrund Víðisdóttir, Anna Þóra Ísfold og Herdís Jónsdóttir.
Stjórn FKA (Félags kvenna í atvinnulífinu) fagnar ráðningu nýs bankastjóra Landsbanka Íslands, Lilju Bjarkar Einarsdóttur. Þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu.

Þar er bent á að tilkynnt var um ráðningu Lilju Bjarkar í fjölmiðlum í gær en nýverið var Katrín Júlíusdóttir, fyrrum ráðherra og þingmaður, ráðin framkvæmdastjóri Samtaka fjármálafyrirtækja.

„Þá hefur Birna Einarsdóttir verið bankastjóri Íslandsbanka í 9 ár og formennsku bankaráðs Landsbankans skipar Helga Björk Eiríksdóttir. Þá má geta þess að formaður stjórnar Arion banka er hin sænska Monica Caneman. Val þessara kvenna til forystu hjá fjármálafyrirtækjum og samtökum, sýnir vel hversu miklum mannauði konur í íslensku atvinnulífi búa yfir,“ segir í tilkynningunni.  






Fleiri fréttir

Sjá meira


×