Íslenski boltinn

Stjarnan velur bestu mörk krakkanna sinna eins og Barcelona | Myndbönd

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Stjörnukonur fagna góðum árangri.
Stjörnukonur fagna góðum árangri. Vísir/Daníel
Stjarnan úr Garðabæ er með öflugt unglingastarf í fótboltanum og fólk í Garðabæ er líka stolt af frammistöðu krakkanna sinna í fótboltanum.

Stjörnumenn hafa nú tekið það upp eins og Barcelona að velja flottustu mörkin sem eru skoruðu í leikjum yngri flokka félagsins.

Stjarnan velur þrjú bestu mörkin í hverjum mánuði og setur myndband með þessum þremur flottustu mörkum framtíðarfólks félagsins inn á Youtube.

Það fór ekkert framhjá íslensku knattspyrnuáhugafólki þegar Daníel Tristan Guðjohnsen á eitt af mörkum vikunnar hjá yngri liðum Barcelona.

Sjá einnig:Frábært mark hjá syni Eiðs Smára

Flottustu mörk Stjörnunnar í aprílmánuði skoruðu þau Róbert Orri Ragnarsson í 4. flokki karla, Lárus Björnsson í 2. flokki karla og Katrín Ynja Hrafnkelsdóttir í 3. flokki kvenna.

Þetta var ekki í fyrsta sinn sem Lárus Björnsson á eitt af flottustu mörkunum en hann komst í líka í úrvalshópinn fyrir febrúar.

Það er hægt að sjá þessi þrjú glæsileg mörk aprílmánaðar í myndbandinu hér fyrir neðan og þar fyrir neðan eru einnig myndbönd með flottustu mörkunum í febrúar og mars.

Mörk mánaðarins - apríl Mörk mánaðarins - mars Mörk mánaðarins - Febrúar



Fleiri fréttir

Sjá meira


×