Körfubolti

Stjarnan steig stórt skref í átt að úrslitakeppninni | Myndir

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
vísir/stefán
Heil umferð fór fram í Domino's deild kvenna í körfubolta í kvöld.

Frábær seinni hálfleikur skilaði Keflavík 72-51 sigri á Skallagrími í toppslag.

Valskonur fóru illa að ráði sínu gegn Stjörnunni í leik liðanna í 4. og 5. sæti deildarinnar. Lokatölur 72-68, Stjörnunni í vil.

Stefán Karlsson, ljíosmyndari Fréttablaðsins og Vísis, var í Ásgarði og tók meðfylgjandi myndir.

Með sigri hefði Valur minnkað forskot Vals í 4. sætinu niður í tvö stig. Núna munar hins vegar sex stigum á liðunum þegar þrjár umferðir eru eftir.

Danielle Victoria Rodriguez skoraði 31 stig, tók sex fráköst og gaf átta stoðsendingar í liði Stjörnunnar. Bríet Sif Hinriksdóttir bætti 23 stigum og sex fráköstum við.

Mia Loyd var með 24 stig, 17 fráköst og fimm stoðsendingar í liði Vals.

Snæfell vann sinn tíunda leik í röð þegar liðið bar sigurorð af Haukum, 60-75.

Aaryn Ellenberg skoraði 26 stig og gaf sex stoðsendingar í liði Snæfells sem situr á toppi deildarinnar.

Þóra Kristín Jónsdóttir skoraði 19 stig fyrir Hauka sem hafa tapað fimm heimaleikjum í röð. Haukar eru enn í sjöunda og næstneðsta sæti deildarinnar.

Grindavík vann sinn fyrsta sigur síðan 3. desember þegar liðið lagði Njarðvík að velli, 73-72.

Angela Marie Rodriguez lék sinn fyrsta leik fyrir Grindavík og spilaði vel. Hún skoraði 21 stig, tók fimm fráköst og gaf átta stoðsendingar.

Carmen Tyson-Thomas var í sérflokki hjá Njarðvík. Hún skoraði 46 stig, tók 20 fráköst og gaf sex stoðsendingar. Njarðvík er í 6. sæti deildarinnar.

Keflavík-Skallagrímur 72-51 (13-23, 14-9, 16-3, 29-16)

Keflavík: Ariana Moorer 21/11 fráköst, Birna Valgerður Benónýsdóttir 10/5 fráköst, Irena Sól Jónsdóttir 8, Emelía Ósk Gunnarsdóttir 7/5 fráköst, Erna Hákonardóttir 6, Kamilla Sól Viktorsdóttir 6, Thelma Dís Ágústsdóttir 5/8 fráköst/6 stoðsendingar, Þóranna Kika Hodge-Carr 4, Katla Rún Garðarsdóttir 3, Elsa Albertsdóttir 2, Salbjörg Ragna Sævarsdóttir 0/12 fráköst/3 varin skot.

Skallagrímur: Tavelyn Tillman 22/4 fráköst, Jóhanna Björk Sveinsdóttir 9/8 fráköst, Kristrún Sigurjónsdóttir 6/6 fráköst, Ragnheiður Benónísdóttir 6/4 fráköst, Sigrún Sjöfn  Ámundadóttir 5/12 fráköst, Fanney Lind Thomas 3.

Stjarnan-Valur 72-68 (15-9, 12-21, 16-16, 29-22)

Stjarnan: Danielle Victoria Rodriguez 31/6 fráköst/8 stoðsendingar, Bríet Sif Hinriksdóttir 23/6 fráköst, Hafrún Hálfdánardóttir 7/4 fráköst, María Lind Sigurðardóttir 6/4 fráköst, Ragna Margrét Brynjarsdóttir 3/10 fráköst/4 varin skot, Jenný Harðardóttir 2/4 fráköst, Bryndís Hanna Hreinsdóttir 0/9 fráköst.

Valur: Mia Loyd 24/17 fráköst/5 stoðsendingar, Elín Sóley Hrafnkelsdóttir 11/4 fráköst/4 varin skot, Dagbjört Dögg Karlsdóttir 10/5 fráköst, Hallveig Jónsdóttir 10/5 fráköst, Elfa Falsdottir 6, Dagbjört Samúelsdóttir 4/4 fráköst/3 varin skot, Helga Þórsdóttir 3. 

Haukar-Snæfell 60-75 (10-16, 12-15, 11-21, 27-23)

Haukar: Þóra Kristín Jónsdóttir 19/7 fráköst/5 stoðsendingar/5 stolnir, Rósa Björk Pétursdóttir 13/7 fráköst, Sigrún Björg Ólafsdóttir 13/6 fráköst, Ragnheiður Björk Einarsdóttir 8/12 fráköst, Anna Lóa Óskarsdóttir 5, Dýrfinna Arnardóttir 2.

Snæfell: Aaryn Ellenberg 26/6 stoðsendingar, Bryndís Guðmundsdóttir 13, Gunnhildur Gunnarsdóttir 11/8 fráköst/3 varin skot, Rebekka Rán Karlsdóttir 6, Berglind Gunnarsdóttir 5/6 fráköst, María Björnsdóttir 4, Alda Leif  Jónsdóttir 4, Sara Diljá Sigurðardóttir 3, Helga Hjördís Björgvinsdóttir 3, Andrea Björt Ólafsdóttir 0/5 fráköst.

Grindavík-Njarðvík 73-72 (20-15, 26-15, 7-22, 20-20)

Grindavík: Angela Marie Rodriguez 21/5 fráköst/8 stoðsendingar, María Ben Erlingsdóttir 19/12 fráköst/5 stoðsendingar, Hrund Skúladóttir 12, Petrúnella Skúladóttir 11/4 fráköst, Íris Sverrisdóttir 4, Ólöf Rún Óladóttir 3, Ingunn Embla Kristínardóttir 3.

Njarðvík: Carmen Tyson-Thomas 46/20 fráköst/6 stoðsendingar, Björk Gunnarsdótir 9, Linda Þórdís Barðdal Róbertsdóttir 8/14 fráköst/3 varin skot, Ína María Einarsdóttir 4, Karen Dögg Vilhjálmsdóttir 3, María Jónsdóttir 2, Hulda Bergsteinsdóttir 0, Erna Freydís Traustadóttir 0, Heiða Björg Valdimarsdóttir 0/5 fráköst, Júlia Scheving Steindórsdóttir 0/4 fráköst.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×