Íslenski boltinn

Stjarnan skoraði níu mörk á móti Fylki | Sjáðu öll mörkin

Einar Sigurvinsson skrifar
Stjarnan var ekki í vandræðum með 1. deildarlið Fylkis í undanúrslitum Mjólkurbikars kvenna í knattspyrnu og vann með átta marka mun, 9-1.

Fylkir komst yfir í leiknum á 18. mínútu með marki frá Thelmu Lóu Hermannsdóttur, en í kjölfarið hrukku Stjörnukonur í gírinn.

Aðeins fjórum mínútum síðar jafnaði Stjarnan leikinn og þegar flautað var til hálfleiks var staðan orðin 4-1.

Stjarnan gaf ekkert eftir í seinni hálfleiknum og skoraði fimm mörk til viðbótar.

Harpa Þorsteinsdóttir skoraði fjögur mörk fyrir Stjörnuna. Þær Telma Hjaltalín Þrastardóttir, Þórdís Hrönn Sigfúsdóttir og Guðmunda Brynja Óladóttir skoruðu síðan eitt mark hver, auk þess sem Fylkir skoraði eitt sjálfsmark.

Öll mörkin úr leiknum má sjá í myndbandsglugganum hér að ofan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×