Sport

Stjarnan og Selfoss Íslandsmeistarar í hópfimleikum

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Stjarnan varð Íslandsmeistari í hópfimleikum í kvennaflokki í dag.
Stjarnan varð Íslandsmeistari í hópfimleikum í kvennaflokki í dag. Vísir
Íslandsmótið í hópfimleikum hófst í Kaplakrika í dag en Stjörnunni og Selfossi tókst að verja Íslandsmeistaratitla sína.

Stjörnukonur urðu Íslandsmeistarar annað árið í röð og höfðu betur gegn A- og B-liðum Gerplu og sameiginlegu liði Ármanns og Fjölnis.

Keppni í kvennaflokki var jöfn. Fyrir síðustu greinina munaði aðeins 0,350 stigum á liðunum en æfingar Stjörnunnar á trampólíni tryggði liðinu titilinn.

Selfoss varð svo Íslandsmeistari í flokki blandaðra liða með talsverðum yfirburðum en Selfyssingar urðu efstir í öllum áhöldum.

Á morgun verður keppt til úrslita í einstökum áhöldum og hefst keppni klukkan 13.00.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×