Fótbolti

Stjarnan og Fjölnir skildu jöfn í sex marka leik | Sjáðu mörkin

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Bose-mótið hófst í gærkvöldi með látum í Kórnum, en þar skildu Stjarnan og Fjölnir jöfn, 3-3, í bráðskemmtilegum fótboltaleik.

Hilmar Árni Halldórsson skoraði fyrsta mark leiksins eftir aðeins 37 sekúndur í sínum fyrsta leik með Stjörnunni, en hann gekk í raðir liðsins frá Leikni eftir síðasta tímabil.

Aron Sigurðarson brenndi svo af vítaspyrnu fyrir Fjölni á 22. mínútu en Daníel Laxdal kom Stjörnunni í 2-0 á 34. mínútu áður en Iain Williamson minnkaði muninn fyrir Fjölni á 44. mínútu. Williamson er á reynslu hjá Fjölni, en hann hefur spilað með Val undanfarin ár.

Alexander Bjarki Rúnarsson jafnaði metin fyrir Fjölni á 58. mínútu en Atli Freyr Ottesen kom Stjörnunni aftur yfir, 3-2, á 70. mínútu. Viðari Ari Jónsson tryggði Fjölni svo eitt stig með sjötta marki leiksins á 86. mínútu, 3-3.

Bose-mótið heldur áfram á morgun þegar Víkingur og KR mætast í Egilshöll.

Leikurinn var í beinni útsendingu á Sport TV og má sjá öll mörkin í spilaranum hér að ofan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×