Íslenski boltinn

Stjarnan náði tveggja stiga forystu | Mikilvægir sigrar ÍA og FH

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Þórdís Hrönn Sigfúsdóttir skoraði eitt mark og lagði upp tvö í sigri Stjörnunnar á Fylki.
Þórdís Hrönn Sigfúsdóttir skoraði eitt mark og lagði upp tvö í sigri Stjörnunnar á Fylki. vísir/eyþór
Stjarnan náði í kvöld tveggja stiga forystu á toppi Pepsi-deildar kvenna þegar liðið vann öruggan 0-3 sigur á Fylki í Árbænum.

Stjörnukonur eru nú með 31 stig, tveimur meira en Breiðablik sem gerði 1-1 jafntefli við Þór/KA fyrr í kvöld.

Harpa Þorsteinsdóttir kom Stjörnunni í 0-1 á 21. mínútu með sínu 17. deildarmarki í sumar og þannig var staðan í hálfleik.

Þórdís Hrönn Sigfúsdóttir og Ana Victoria Cate gengu svo frá leiknum með tveimur mörkum á þriggja mínútna kafla í seinni hálfleik. Þórdís skoraði ekki bara eitt marka Stjörnunnar í kvöld heldur lagði hún hin tvö upp.

ÍA hleypti mikilli spennu í botnbaráttuna með 1-2 sigri á Selfossi.

Skagakonur hafa náð í fjögur stig í tveimur leikjum eftir að hjónin Kristinn Guðbrandsson og Steindóra Steinsdóttir tóku við þjálfun þess og eru nú bara tveimur stigum frá öruggu sæti.

Cathrine Dyngvold og Megan Dunnigan skoruðu mörk ÍA á fyrstu 20 mínútum leiksins en sú síðarnefnda hefur gert fimm af sjö mörkum Skagakvenna í Pepsi-deildinni í sumar.

Alyssa Telang minnkaði muninn í 1-2 á 27. mínútu en nær komust Selfyssingar ekki. Illa hefur gengið hjá liðinu undanfarnar vikur en Selfoss vann síðast leik 29. júní.

Alex Nicole Alugas var hetja FH þegar liðið tók á móti KR í Kaplakrika.

Alugas, sem kom til FH frá Sindri í júlí-glugganum, tryggði Fimleikafélaginu öll þrjú stigin þegar hún skoraði eina mark leiksins á lokamínútunni.

FH er nú komið með 13 stig og er í fimm stiga fjarlægð frá fallsæti. KR hefur hins vegar tapað sex leikjum í röð og er í erfiðri stöðu á botni deildarinnar.

Upplýsingar um úrslit og gang mála eru fengnar frá Úrslit.net og Fótbolti.net.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×