Íslenski boltinn

Stjarnan í úrslit

Ásgerður Stefanía var á skotskónum í kvöld.
Ásgerður Stefanía var á skotskónum í kvöld. vísir/daníel
Stjarnan komst í kvöld í úrslit Lengjubikars kvenna í fótbolta. Stjarnan lagði Val, 2-0, í undanúrslitum í kvöld.

Markalaust var í leikhléi en þær Rúna Sif Stefánsdóttir og Ásgerður Stefanía Baldursdóttir skoruðu fyrir Stjörnuna í síðari hálfleik.

Breiðablik og Þór/KA mætast í hinum undanúrslitaleiknum á morgun og úrslitaleikurinn fer fram í Egilshöll á sunnudag.

Upplýsingar um markaskorara: urslit.net.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×