Handbolti

Stjarnan hafði betur í frumrauninni

Ólafur skoraði sex mörk í frumraun sinni í Stjörnutreyjunni en hann kom heim úr atvinnumennsku fyrr á árinu.
Ólafur skoraði sex mörk í frumraun sinni í Stjörnutreyjunni en hann kom heim úr atvinnumennsku fyrr á árinu. Vísir/getty
Stjörnumenn byrjuðu tímabilið í Olís-deild karla með naumum þriggja marka sigri á Akureyri í fyrstu umferð Olís-deild karla í dag 26-23.

Jafnræði var með liðunum allan leikinn en heimamenn leiddu í hálfleik 11-10 á heimavelli.

Akureyringar sem höfnuðu í 8. sæti deildarinnar á síðasta tímabili voru inn í leiknum allan leikinn en á lokasprettinum voru það heimamenn sem voru sterkari.

Garðar B. Sigurjónsson var atkvæðamestur í liði heimamanna með níu mörk en Ólafur Gústafsson bætti við sex mörkum í fyrsta leik sínum í Stjörnutreyjunni.

Í liði Akureyringa var það Kristján Jóhannsson sem var markahæstur með átta mörk en Karolis Stropus kom næstur með fimm mörk.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×