Íslenski boltinn

Stjarnan fer til Rússlands

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Stjörnukonur urðu Íslandsmeistarar með yfirburðum í fyrra.
Stjörnukonur urðu Íslandsmeistarar með yfirburðum í fyrra. Vísir/Daníel
Í morgun var dregið í 32-liða úrslit Meistaradeildar Evrópu, þar sem Íslandsmeistarar Stjörnunnar drógust á móti rússneska liðinu WFC Zvezda-2005 Perm.

Zvezda Perm situr sem stendur í toppsæti rússnesku úrvalsdeildarinnar með 22 stig eftir 10 leiki, tveimur stigum á undan Ryazan. Zvezda Perm hafnaði í öðru sæti deildarinnar á síðasta tímabili, sex stigum á eftir meisturum Ryazan.

Fyrri leikurinn fer fram á Íslandi 8. eða 9. október og sá seinni 15. eða 16. október.

Sigurvegarinn í þessari viðureign mætir annað hvort Linköping frá Svíþjóð eða Liverpool, liði Katrínar Ómarsdóttur, í næstu umferð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×