Körfubolti

Stjarnan búin að finna Kana

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Devon Austin leikur með Stjörnunni í vetur.
Devon Austin leikur með Stjörnunni í vetur. mynd/stjarnan
Stjarnan hefur náð samkomulagi við Bandaríkjamanninn Devon Andre Austin um að leika með liðinu í Domino's deildinni í vetur.

Austin útskrifaðist úr Manhattan háskólanum árið 2009 og hefur aflað sér töluverðrar reynslu í Evrópu síðan þá og leikið í efstu deildum í Portúgal, Rúmeníu og Póllandi.

Devon þykir mjög fjölhæfur leikmaður á báðum endum vallarins og hefur spilað fjórar leikstöður síðastliðin ár sem atvinnumaður.

Aðspurður sagði Hrafn Kristjánsson þjálfari Stjörnunnar að hann hefði leitað að leikmanni sem gæti skilað til liðsins á margan hátt.

„Í kjölfar breytinga á leikmannahópnum ákvað ég að taka þá stefnu að leita að manni sem gæti jöfnum höndum hjálpað okkur í frákastabaráttunni, varnarleik á sem flestar leikstöður og jafnvel hjálpað til við að bera boltann upp völlinn ef þess þarf. Ég tel að Devon sé sá leikmaður, svo verðum við bara að bíða og sjá. Hann brennir ekki af einu skoti á highlight myndbandinu þannig að ég er nokkuð vongóður.“

Leikmannahópur karlaliðs Stjörnunnar er nú fullskipaður að sögn Hrafns.

„Ég er mjög ánægður með hópinn eins og hann er skipaður núna og tel hann tilbúinn til að keppa að öllum okkar markmiðum. Þau eru þau sömu og síðastliðin tímabil og þau sem Stjarnan Garðabæ á að setja sér á hverju einasta ári, að keppa til þeirra verðlauna sem í boði eru.“


Tengdar fréttir

Hlynur til Stjörnunnar

Hlynur Bæringsson, fyrirliði íslenska karlalandsliðsins í körfubolta, mun leika með Stjörnunni í Domino's deild karla á komandi tímabili.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×