Sport

Stipe Miocic stóðst prófið á heimavelli

Pétur Marinó Jónsson skrifar
Stipe Miocic klárar Overeem.
Stipe Miocic klárar Overeem. Vísir/Getty
Stipe Miocic tókst að verja þungvigtartitil sinn í nótt á UFC 203. Miocic kláraði Alistair Overeem í 1. lotu í frábærum bardaga.

Aðalbardaginn á UFC 203 var stuttur en mjög skemmtilegur. Alistair Overeem tókst að kýla meistarann Stipe Miocic niður snemma í 1. lotu. Hann reyndi að fylgja högginu eftir með „guillotine“ hengingu en Miocic varðist vel og komst aftur á lappir.

Stipe Miocic datt í gang eftir það og náði að hitta nokkrum góðum höggum á Overeem. Miocic greip spark frá Overeem og tók hann niður í gólfið þegar tæp mínúta var eftir af 1. lotunni.

Í gólfinu veitti Miocic þung högg í gólfinu og rotaði Overeem eftir 4:27 í 1. lotu. Góð frammistaða hjá Stipe Miocic í sinni fyrstu titilvörn og hlaut hann mikinn stuðning á heimavelli í Cleveland þar sem bardagakvöldið fór fram.

Fabricio Werdum og Travis Browne mættust í annað sinn og var bardaginn ansi undarlegur. Werdum byrjaði mjög vel og hafði yfirburði allan bardagann. Hann henti í mörg undarleg spörk og kollhnísa en sigurinn var þó aldrei í hættu.

Werdum kýldi í fingur Browne í 1. lotu og datt fingur Browne úr lið. Browne óskaði eftir pásu og átti sér stað ákveðin ringulreið þar sem enginn vissi hvort bardaginn hefði verið stöðvaður eða ekki. Browne fékk smá pásu og kíkti læknirinn á fingurinn. Samkvæmt reglunum hefði Browne ekki átt að fá hlé líkt og hann fékk.

Fyrrum heimsmeistarinn Werdum fór með sigur af hólmi eftir örugga dómaraákvörðun. Eftir bardagann hrópaði þjálfari Browne, Edmund Tarverdyan, einhverju að Werdum sem brást við með því að sparka í þjálfarann. Undarleg atburðarrás og undarlegur endir á bardaganum.

Bardagakvöldið var ansi skemmtilegt en öll önnur úrslit má sjá á vef MMA Frétta hér.

MMA

Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×