Lífið

Stingur sér á bólakaf í leiklistina

Adda Soffía Ingvarsdóttir skrifar
Ragnheiður Ragnarsdóttir sunddrottning hefur nýtt líf í borg englanna
Ragnheiður Ragnarsdóttir sunddrottning hefur nýtt líf í borg englanna Vísir/Stefán
„Ég ákvað að skrá mig bara í stutt nám til að byrja með til að athuga hvort þessi skóli henti mér. Námskeiðið í haust er að byrja núna a mánudaginn næsta og því lýkur í nóvember,?“

segir sundkonan Ragnheiður Ragnarsdóttir. Hún flutti í síðustu viku til Los Angeles þar sem hún hyggst stunda nám við New York Film Academy. Þar ætlar Ragnheiður, eða Ragga eins og hún er oftast kölluð, að taka námskeið í Acting for film eða kvikmyndaleik.

Aðspurð segist Ragnheiður ætla að byrja á þessu námskeiði og sjá hvernig henni lýst á borgina. Hún reiknar með því að koma heim um jólin en fara svo aftur út. Áhuginn fyrir því að læra leiklist kviknaði fyrir nokkrum árum, en ekki gafst tími til þess að sinna þeim draumi þá, þar sem sundið átti hug hennar allan. Ragnheiður á að baki glæstan feril sem sundkona en hún var aðeins 19 ára gömul þegar keppti á Ólympíuleikunum 2004, yngst íslenskra sundkvenna og aftur á leikunum árið 2008.

Ragnheiður fór út ásamt eiginmanni sínum Atla Bjarnasyni,viðskiptafræðing og athafnamanni og syni þeirra Breka, en Ragnheiður og Atli gengu í hjónaband þann 15.júní 2013 við fallega athöfn í Dómkirkjunni. Á meðan dvöl þeirra stendur ætlar Atli að klára ritgerðina sína ásamt því að sinna fleiri verkefnum og hugsa um soninn. Annars verður nóg að gera hjá sundkonunni í vetur.

„Svo eru rosa margir spenntir fyrir að koma í heimsókn svo við verðum lika bara upptekin í túristaleik með þeim sem ætla að kíkja i heimsókn, svona þegar ég verð ekki í skólanum?,“ segir Ragnheiður spennt fyrir komandi vetri og nýjum ævintýrum í borg englanna.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×