Fótbolti

Stiklað á ferli Eiðs Smára í atvinnumennsku

Anton Ingi Leifsson skrifar
Eiður skorar mark gegn Liverpool.
Eiður skorar mark gegn Liverpool. vísir/getty
Eiður Smári Guðjohnsen mun að öllum líkindum skrifa undir samning við Shijiazhuang Ever Bright eftir helgi eins og Vísir greindi frá fyrr í morgun.

Umboðsskrifstofan Total Football hefur tekið saman myndband frá ferli Eiðs Smára í atvinnumennsku og birti það á Vimeo síðu sinni. Myndbandið má sjá neðst í fréttinni.

Þessi magnaði landsliðsmaður hefur komið við víða á sínum ferli eins og Fréttablaðið/Vísir tók saman í morgun, en greinina má lesa hér.

Gangi allt að óskum og skrifi Eiður Smári undir í Kína verður það fjórtánda félag hans á 22 ára ferli. Hann hefur leikið í átta löndum þegar hann spilar sinn fyrsta leik í Kína.

Eidur Gudjohnsen (1978) - Highlights from Total Football on Vimeo.


Tengdar fréttir

Landkönnuðurinn Eiður Smári

Eiður Smári Guðjohnsen er á leið til kínverska úrvalsdeildarfélagsins Shijiazhuang Ever Bright og mun spila með liðinu út þetta tímabil. Markahæsti leikmaður íslenska landsliðsins frá upphafi er þar með að fara að spila í áttunda landinu á litríkum ferli




Fleiri fréttir

Sjá meira


×