Bíó og sjónvarp

Stikla úr kvikmyndinni Justice League frumsýnd

Erna Agnes Sigurgeirsdóttir skrifar
Justice League í fullum skrúða.
Justice League í fullum skrúða.
Comic Con hátíðin er haldin um þessa helgi í San Diego í Bandaríkjunum í dag. Þar var meðal annars frumsýnt sýnishorn úr bíómyndinni Justice League sem margir hafa eflaust beðið spenntir eftir.

Þar má meðal annars sjá Wonder Woman, Cyborg, The Flash, Batman og Aquaman berjast gegn nýrri ógn sem herjar á heiminn allan.

Brot úr myndinni voru meðal annars tekin á Vestfjörðum hér á landi landi í fyrra. 

Búist er við að myndin verði frumsýn 17. nóvember næstkomandi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×