Bíó og sjónvarp

Stikla um Óla Stef: „Óli Prik er að fæðast akkúrat núna“

Kjartan Atli Kjartansson skrifar
Heimildarmyndin um Ólaf Stefánsson, handknattleiksmann verður frumsýnd í næstu viku. Vísir birtir nú nýja stiklu úr myndinni og af henni að dæmi er ljóst að farið verður um víðan völl og líf og skoðanir Óla Stef, handknattleikshetju þjóðarinnar, verða kortlagðar nákvæmlega.

Titill myndarinnar er Óli Prik og er undirtitillinn Þroskasaga þjóðhetju. Myndin verður í leikstjórn Árna Sveinssonar sem gerði meðal annars Í skóm drekans, Með hangandi hendi og Backyard. Árni fylgdi Óla eftir eins og skugginn í eitt og hálft ár.

Sjá einnig:Ekkert dregið undan í myndinni Óli prik

Grímar Jónsson framleiðir fyrir hönd Netop Films. Hann hefur nýlokið tökum á kvikmyndinni Hrútum í leikstjórn Gríms Hákonarsonar, en hann hefur áður framleitt m.a. myndirnar Rafmögnuð Reykjavík, Smáfuglar og Brim.

Sjá einnig:Heimildarmynd um Óla Stef: Þrosasaga þjóðhetju

Tónlist í myndinni er í höndum strákanna í Mono Town sem slógu rækilega í gegn með sinni fyrstu breiðskífu In the eye of the storm á síðasta ári.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×