Leikjavísir

Stikla fyrir Red Dead Redemption 2 sýnd á fimmtudaginn

Samúel Karl Ólason skrifar
Leikjafyrirtækið Rockstar hefur staðfest að Red Dead Redemption 2 verður gefinn út. Fyrirtækið hefur verið að stríða leikjaspilurum með (alls ekki óljósum) vísbendinum síðustu daga en stikla fyrir leikinn verður sýnd á fimmtudaginn.

Á nýrri síðu fyrir RDD 2 segir að leikurinn gerist í stórum heimi og að fjölspilun verði hluti af honum.

Red Dead Redemption kom út árið 2010 fyrir PS3 og Xbox 360. Hann fjallaði um kúrekann John Marston og uppgjör hans við gamla vini sína, sem voru með honum í klíku. Hann hefur verið nefndur sem besti leikur þessarra leikjatölva og er í sjötta sæti á Metacritic.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×