Lífið

Stígðu til hliðar Helgi Björns: Frábær útgáfa af Ef ég nenni bræðir Íslendinga

Stefán Árni Pálsson skrifar
Helgi þarf að passa sig núna.
Helgi þarf að passa sig núna.
Þeir Ívar Daníels, Birgir Sævarsson og Magnús Hafdal hafa verið að gera fína hluti í tónlistarbransanum hér á landi. Ívar og Magnús slógu til að mynda í gegn í Ísland Got Talent á sínum tíma.

Á Facebook má finna myndband af flutningi þeirra félaga á laginu Ef ég nenni með Helga Björnssyni.

Lag sem er eitt vinsælasta jólalag okkar Íslendinga. Flutningurinn er í a capella og er hreint út sagt frábær.

Hér að neðan má hlusta á drengina koma ykkur í jólaskap.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×