Stífar reglur vegna mataráskriftar þolraun fyrir stúlku sunna karen sigurþórsdóttir skrifar 12. febrúar 2016 16:15 Dæmi eru um að börn sitji ein í matmálstímum. vísir/pjetur
Unglingsstúlka í Árbæjarskóla hefur þurft að leita stuðnings sérfræðinga vegna fyrirkomulags skólans þess efnis að meina börnum, sem ekki eru í mataráskrift hjá Reykjavíkurborg, að borða hádegismat sinn með öðrum nemendum í mötuneytinu. Stúlkan er ekki í mataráskrift sökum heilsufarsástæðna. Fyrirkomulagið er með þeim hætti að einungis börn í mataráskrift fá að borða í mötuneyti skólans á matmálstímum. Foreldrum var tilkynnt, eftir að kvartanir tóku að berast, að þetta væri gert til að koma í veg fyrir að börnin væru að deila matnum með öðrum, því hann væri af skornum skammti. Nemendur í mataráskrift eiga rétt á að fá sér tvisvar á diskinn.Sjá einnig:Börn ekki í mataráskrift þurfa að borða annars staðar Móðir stúlkunnar leitaði til skólastjórnenda vegna málsins, og voru svörin þau að ekki væri hægt að breyta þessu fyrirkomulagi. Málið tók verulega á barnið sem ræddi leitaði frekari stuðnings. Að sögn móðurinnar eru allar hennar vinkonur í mataráskrift og því hefur stúlkan þurft að sitja ein utan matsalarins. Vinkonur hennar sýni henni þó fullan skilning og reyni að klára mat sinn eins fljótt og auðið sé, svo hún þurfi ekki að vera ein allt hádegið. Móðirin, sem ekki vill láta nafns síns getið, segist afar ósátt og vill að fundið verði annað fyrirkomulag á matmálstímum nemenda. Greint var frá þessu fyrirkomulagi skólans á Vísi í gær. Foreldri sem rætt var við sagði nokkur dæmi þess að börn sitji ein á matmálstíma, því flest öll börn séu í mataráskrift. Skólastjóri sendi foreldrum bréf þar sem fram kom að ástæða þess að ekki sé hægt að blanda nemendum á unglingastigi saman í mat sé sú að skólinn ráði ekki við að þjónusta þá með þeim hætti. Reynt hafi verið að blanda nemendum saman þar sem ekki hafi gengið að þeir hafi borðað hver af annars diski. Dæmi sé um að maturinn hafi klárast og að þeir sem voru í áskrift hafi ekki fengið sinn skammt. Foreldrið sagði sögum þó ekki bera saman, því kvartanir hafi borist um að börn á miðstigi hafi ekki fengið að snæða með skólasystkinum sínum. Samkvæmt upplýsingum frá foreldrafélaginu er unnið að því að leysa málið í samráði við skólastjórn.
Tengdar fréttir „Grunnþjónusta við börn á að vera gjaldfrjáls“ Borgarfulltrúar gagnrýna ákvörðun Fellaskóla um að neita barni um pítsu í skólanum. 11. febrúar 2016 11:40 „Hef áhyggjur af því að svona umfjöllun skaði skólasamfélagið“ Formaður Félags skólastjórnenda gagnrýnir umfjöllun um mataráskriftir grunnskólabarna. 11. febrúar 2016 17:15 Dagur B: „Fauk hressilega í mig við að lesa þessa frétt“ Borgarstjóri hefur óskað eftir skýringum frá skóla- og frístundasviði vegna fréttar um að ellefu ára stúlku hafi verið neitað um að taka þátt í pítsuveislu í Fellaskóla. 11. febrúar 2016 10:08 Vill að dóttir sín skipti um skóla Móðir ellefu ára gamallar stelpu, sem fékk ekki að taka þátt í pítsuveislu í Fellaskóla í tilefni öskudags þar sem hún var ekki í mataráskrift í skólanum, segir koma til greina að hún skipti um skóla vegna málsins. Sviðstjóri skóla og frístundasviðs borgarinnar segir skólayfirvöld hafa brugðist rétt við í málinu. 11. febrúar 2016 19:45 Fékk ekki að taka þátt í pítsuveislu á öskudag Stúlkan fór með fimm hundruð krónur í skólann og spurði hvort hún mætti kaupa eina pítsusneið. Henni var neitað um það í mötuneytinu 11. febrúar 2016 00:01 Börn ekki í mataráskrift þurfa að borða annars staðar Dæmi að börn sitji ein í matmálstímum. 11. febrúar 2016 14:15 Mest lesið „Það þarf að stoppa svona menn áður en þeir drepa einhvern“ Innlent Fjölskylda í norðurljósaleit hrakin á brott af leiðsögumönnum Innlent „Hvergi í verklagsreglum að við séum að reka fólk í burtu“ Innlent Svipar til gamalla óupplýstra rána Innlent Íbúar Hlíða velta fyrir sér dularfullum hvelli Innlent Fullkomlega sáttur við ákvörðun sína en útilokar ekkert Innlent Hamfaragámur Bónus tryggir kældan mat í neyðarástandi Innlent Ísland að tapa í slagnum um ferðamenn Innlent Ísland sé í torfkofanum í meðferð alvarlegra atvika Innlent Verulega brugðið yfir Hamraborgarmálinu Innlent Fleiri fréttir Hætt við framboð og vonast eftir þjóðhollum og guðræknum forseta Ísland að tapa í slagnum um ferðamenn „Hvergi í verklagsreglum að við séum að reka fólk í burtu“ Aðstoða göngumann á Móskarðshnjúkum Íbúar Hlíða velta fyrir sér dularfullum hvelli Ísland sé í torfkofanum í meðferð alvarlegra atvika Ný og glæsileg skólaþyrping byggð á Hellu Hamfaragámur Bónus tryggir kældan mat í neyðarástandi Fullkomlega sáttur við ákvörðun sína en útilokar ekkert „Það þarf að stoppa svona menn áður en þeir drepa einhvern“ Hádegisfréttir Bylgjunnar Svipar til gamalla óupplýstra rána Sýknaður af ákæru um að hafa tekið í háls barns Bjartur skírdagur fram undan í höfuðborginni Líkamsárás til rannsóknar eftir nóttina Fjölskylda í norðurljósaleit hrakin á brott af leiðsögumönnum Vilja koma böndum á bókhald trúfélaga Ferðaóðir Íslendingar þyrpast í ferðalög innanlands sem utan Verulega brugðið yfir Hamraborgarmálinu Hátt í hundrað dauðsföll á þremur árum Týndi vinningshafinn gaf sig fram og græddi níu milljónir Felldu úr gildi friðlýsingu en mátu Mumma ekki vanhæfan Kvöldfréttir Stöðvar 2 Býr á Íslandi en dæmd í sex ára fangelsi í Rússlandi Eldur í Hafnarfirði Haraldur mátti ekki hækka launin en Sigríður ekki heldur lækka þau Læknafélagið mótfallið lögleiðingu dánaraðastoðar „Trúði því ekki að þetta væri ég“ Ekki viss hvort nokkru þurfi að breyta eftir tug milljóna króna þjófnað 546 Grindvíkingar vilja selja Þórkötlu húsið sitt Sjá meira
„Grunnþjónusta við börn á að vera gjaldfrjáls“ Borgarfulltrúar gagnrýna ákvörðun Fellaskóla um að neita barni um pítsu í skólanum. 11. febrúar 2016 11:40
„Hef áhyggjur af því að svona umfjöllun skaði skólasamfélagið“ Formaður Félags skólastjórnenda gagnrýnir umfjöllun um mataráskriftir grunnskólabarna. 11. febrúar 2016 17:15
Dagur B: „Fauk hressilega í mig við að lesa þessa frétt“ Borgarstjóri hefur óskað eftir skýringum frá skóla- og frístundasviði vegna fréttar um að ellefu ára stúlku hafi verið neitað um að taka þátt í pítsuveislu í Fellaskóla. 11. febrúar 2016 10:08
Vill að dóttir sín skipti um skóla Móðir ellefu ára gamallar stelpu, sem fékk ekki að taka þátt í pítsuveislu í Fellaskóla í tilefni öskudags þar sem hún var ekki í mataráskrift í skólanum, segir koma til greina að hún skipti um skóla vegna málsins. Sviðstjóri skóla og frístundasviðs borgarinnar segir skólayfirvöld hafa brugðist rétt við í málinu. 11. febrúar 2016 19:45
Fékk ekki að taka þátt í pítsuveislu á öskudag Stúlkan fór með fimm hundruð krónur í skólann og spurði hvort hún mætti kaupa eina pítsusneið. Henni var neitað um það í mötuneytinu 11. febrúar 2016 00:01
Börn ekki í mataráskrift þurfa að borða annars staðar Dæmi að börn sitji ein í matmálstímum. 11. febrúar 2016 14:15