Erlent

SÞ þurfa rúman milljarð dala gegn ebólu

Samúel Karl Ólason skrifar
Vísir/AFP
Sameinuðu þjóðirnar segjast þurfa rúman milljarð dala, eða tæpa 120 milljarðar króna, til að sporna gegn útbreiðslu ebóluveirunnar í Vestur-Afríku. Á blaðamannafundi í Genf í dag sagði háttsettur embættismaður innan SÞ að faraldurinn ætti sér enga hliðstæðu á okkar tímum.

BBC segir að á fundinum hafi komið fram að minnst 4.985 einstaklingar hafi smitast af ebólu. Um helmingur þeirra hefur látið lífið.

„Við báðum um 100 milljónir dala fyrir mánuði síðan og núna erum við að biðja um milljarð. Verkefni okkar hefur tífaldast í umfangi,“ sagði David Nabarro hjá SÞ á blaðamannafundinum.

„Í sannleika sagt, dömur mínar og herrar, á ástandið sem við eigum við að etja sér enga hliðstæðu í nútímanum. Við vitum ekki hve háar tölurnar munu verða.“

Bandaríkin munu senda um þrjú þúsund hermenn til Líberíu, þar sem þeir munu byggja 17 móttökustöðvar fyrir smitaða, flytja birgðir til þeirra sem þurfa og þjálfa heilbrigðisstarfsmenn.

Læknar án landamæra kalla eftir því að önnur ríki heimsins fari eftir fordæmi Bandaríkjanna, en alþjóðasamfélagið hefur verið gagnrýnt fyrir hæg viðbrögð gegn útbreiðslu veirunnar.

Fram kom á fundinum að læknar án landamæra hafi þurft að vísa smituðum frá í Líberíu þar sem öll umönnunarpláss hafi verið full.

„Smitaðir einstaklingar hafa þurft að snúa aftur til síns heima, þar sem þeir smita aðra og halda dreifingu veirunnar áfram. Allt vegna skorts á alþjóðlegri aðstoð,“ sagði Joanne Liu, forseti lækna án landamæra.


Tengdar fréttir

Auka viðbúnað vegna ebólu

Bandaríkin og Bretland munu á komandi vikum setja upp heilsugæslur og senda nauðsynjavörur og -búnað til þeirra ríkja sem verst hafa orðið úti í baráttunni við ebólufaraldurinn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×