Lífið

Stevie Nicks gengin til liðs við The Voice

Stevie Nicks
Stevie Nicks Vísir/Getty
Stevie Nicks er gengin til liðs við sjónvarpsþáttinn og hæfileikakeppnina the Voice, en hún verður ráðgjafi liðs Adam Levine, söngvara hljómsveitarinnar Maroon 5.

Tökur hafa þegar hafist á sjöundu þáttaröðinni. Nicks sem er sextíu og sex ára gömul hefur verið Levine innan handar með lagaval og æfingar fyrir tólf manna hóp sem keppir undir hans handleiðslu.

Stevie Nicks er söngvari sveitarinnar Fleetwood Mac sem er á leið á tónleikaferðalag til 33. borga í Bandaríkjunum. Ferðalagið hefst í september í Minneapolis.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×