Enski boltinn

Sterling tryggir ekki eftir á

Sterling mun örugglega halda betur utan um tryggingarmálin í framtíðinni.
Sterling mun örugglega halda betur utan um tryggingarmálin í framtíðinni. vísir/getty
Raheem Sterling, stjarna Liverpool, er greinilega upptekinn í barnauppeldinu því hann heldur ekki nógu vel utan um tryggingarnar sínar.

Hann gleymdi að kaupa tryggingu á einn af bílunum sínum og var kærður fyrir kæruleysið.

Hann játaði sekt sína og var sektaður um 138 þúsund krónur. Moldríkur knattspyrnumaðurinn ræður auðveldlega við það.

Þar sem hann játaði brot sitt slapp hann við sekt upp á 193 þúsund krónur og munar um minna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×