Innlent

Sterkasti drifkrafturinn er höfnun

Erla Björg Gunnarsdóttir og Snærós Sindradóttir skrifa
Elísabet segir pabba sinn hafa hafnað sér sem hafi haft áhrif á allt hennar líf.
Elísabet segir pabba sinn hafa hafnað sér sem hafi haft áhrif á allt hennar líf. vísir/stefán
Elísabet Jökulsdóttir segist hafa farið í forsetaframboð til að flýja þá svakalegu viðurkenningu sem henni er veitt við að vera tilnefnd til bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs.

„Ætli ég tapi ekki bæði. Eða vinni bæði. En ég er ótrúlega stolt,“ segir hún í föstudagsviðtali Fréttablaðsins þar sem hún mætti Davíð Oddssyni og Hildi Þórðardóttur.

Elísabet segir höfnun drífa hana áfram í baráttunni.

„Minn sterkasti drifkraftur er höfnun. Flest sem ég geri er til að fá höfnun. Pabbi minn hafnaði mér þegar ég var lítil. Bræður mínir fengu miklu meiri athygli, svona eins og gengur og gerist í þjóðfélaginu. Það er reyndar að breytast núna. Ég horfi á strákana mína með stelpurnar sínar, þeir eru dásamlegir feður.“

Forsetaframboðið hefur eflt Elísabetu. Hún segir að allir ættu að fara í námskeið í að finna forsetann í sjálfum sér.

„Þetta ferðalag er svo mikil manndómvígsla. Ég er algjörlega breytt manneskja eftir þetta. Svo er fólk farið að styrkja framboðið og segir svo fallega hluti. Fyrir tveimur mánuðum var sagt að ég ætti einhvern töfrahljóm sem hljómaði stöðugt betur og þá sagði ég við son minn að ég gæti bara hætt núna.“


Tengdar fréttir

Tilfinningar voru ekki í boði

Hildur Þórðardóttir segist ekki vera á móti lyfjanotkun, eingöngu ofnotkun lyfja. Mikilvægt sé að vinna úr tilfinningum jafnóðum.

Óttast ekki höfnun

Davíð Oddsson, Hildur Þórðardóttir og Elísabet Jökulsdóttir mættust í föstudagsviðtalinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×