Lífið

Sterkar stelpur þora að vera þær sjálfar

Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar
Ingunn Anna, Lilja Hrund og Urður Helga tóku viðtöl við konur sem þær líta upp til.
Ingunn Anna, Lilja Hrund og Urður Helga tóku viðtöl við konur sem þær líta upp til. Vísir/Valli
Urður Helga Gísladóttir, Lilja Hrund Lúðvíksdóttir og Ingunn Anna Kristinsdóttir sigruðu í myndbandakeppni sem haldin var af Þróunarsamvinnustofnun Íslands í tengslum við átakið Sterkar stelpur sem stóð frá 6. til 11. október.

Stelpur, hvað eruð þið gamlar og í hvaða skóla eruð þið? „Við erum allar fimmtán ára og erum í Garðaskóla í Garðabæ.“



Hvernig kom það til að þið tókuð þátt í myndbandakeppninni Sterkar stelpur? „Við rákumst á grein um keppnina í Fréttablaðinu og vissum að við gætum skilað af okkur góðu verkefni og ákváðum að slá til.“



Hafið þið gert myndbönd áður? „Ekki af neinni alvöru en höfum samt fengið smá æfingu í skólanum.“

Hver átti hugmyndina að efni myndbandsins og hversu langt er það? „Við vissum strax að við vildum taka viðtöl en svo púslaðist þetta allt saman þegar leið á vinnuna. Við tókum samtals upp einn og hálfan klukkutíma af efni sem við styttum svo niður í fjórar mínútur.“

Fannst ykkur þetta skemmtilegt verkefni? „Það gekk svona upp og ofan en þegar upp er staðið erum við ánægðar með útkomuna.“

Hvernig völduð þið viðmælendur í myndbandið? „Við vildum taka viðtöl við konur sem höfðu náð árangri á sínu sviði. Svo bara notuðum við tengslin sem við höfðum og sendum tölvupósta á þær. Síðan mæltum við okkur mót við þær sem samþykktu og höfðu tíma til.“

Lærðuð þið eitthvað af konunum sem þið töluðuð við? „Við lítum allar mikið upp til þessara kvenna. Þær hafa náð árangri og sýna vel hvað það er að vera sterk stelpa og bara sterk manneskja. Það hefur miklu meiri áhrif á mann að heyra hvað þær hafa að segja í eigin persónu en í gegnum fjölmiðla.“

Hvernig verða stelpur sterkar að ykkar áliti? „Okkur finnst skilgreiningin á sterkri manneskju það að vera hugrakkur, þora að vera maður sjálfur og að gera það sem maður vill þrátt fyrir skoðanir annarra. Menningarlegur og félagslegur bakgrunnur skiptir samt auðvitað máli og persónuleiki manneskjunnar líka. Það eru samt allir sterkir á sinn hátt þó að við skilgreinum hugtakið svona.“

Gerði þetta verkefni ykkur að sterkari stelpum en áður? „Öll verkefni sem við skilum af okkur á lífsleiðinni og allar hindranir sem við yfirstígum gera okkur að sterkari manneskjum, þar með talið þetta myndband.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×