Handbolti

Stephen Nielsen lánaður í frönsku úrvalsdeildina

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Nielsen snýr aftur til ÍBV á næsta ári.
Nielsen snýr aftur til ÍBV á næsta ári. vísir/vilhelm
ÍBV hefur lánað markvörðinn Stephen Nielsen til franska úrvalsdeildarliðsins Aix út þetta ár. Arnar Pétursson, þjálfari ÍBV, staðfesti þetta í samtali við Vísi nú rétt í þessu.

Nielsen er ætlað að fylla skarð norska landsliðsmarkvarðarins Ole Erevik hjá Aix en hann er meiddur.

Nielsen leikur með Aix út árið en hann snýr svo aftur til ÍBV þegar keppni hefst aftur í Olís-deildinni eftir HM 2017.

Nielsen er danskur en fékk íslenskan ríkisborgararétt í desember í fyrra. Hann lék sinn fyrsta landsleik fyrir Ísland gegn Portúgal í janúar á þessu ári.

Nielsen, sem er 31 árs, kom fyrst hingað til lands 2013 og lék í eitt tímabil með Fram. Sumarið 2014 gekk hann í raðir Vals og ári seinna fór hann svo til ÍBV.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×