Innlent

Stemma þurfi stigu við starfsemi kampavínsklúbba hér á landi

sunna karen sigurþórsdóttir skrifar
Þorsteinn Sæmundsson þingmaður Framsóknarflokksins.
Þorsteinn Sæmundsson þingmaður Framsóknarflokksins. Vísir
Full ástæða er til þess að stemma stigu við starfsemi kampavínsklúbba hér á landi og full ástæða er til þess að gaumgæfa þau mál verulega. Þetta sagði Þorsteinn Sæmundsson, þingmaður Framsóknarflokks, í sérstakri umræðu um starfsemi kampavínsklúbba á Alþingi í dag.

Þorsteinn sagði starfsemi kampavínsklúbba lengi hafa verið þyrnir í augum sínum. Það hafi komið sér á óvart að sjá hversu margvísleg brot tengist þessari klúbbastarfsemi, líkt og tilgreind voru í svari innanríkisráðherra við fyrirspurn hans.

Um sé meðal annars að ræða brot sem varða fíkniefnalöggjöf, sölu vændis, líkamsárásir og fjármálabrot. Hins vegar séu fæst brotanna kærð enda komi menn inn á þessa staði í misjöfnu ástandi, sé jafnvel byrlað ólyfjan og greiðslukort þeirra misnotað. Þeir einstaklingar séu oft hræddir við að skýra þeirra nánustu frá og sleppa því þess vegna að kæra.

„Í sjálfu sér má kannski segja að það geti ekki verið mjög einfalt fyrir þolendur, það eru margs konar þolendur í þessum málum, þar á meðal eru menn sem detta inn á þessa staði í misjöfnu ástandi. Það hafa komið upp mál þar sem talið er að þeim hafi verið byrlað ólyfjan og kortið þeirra er það sem er kallað á góðri íslensku „maxað“ á stuttum tíma og það kann að vera erfitt fyrir menn að útskýra það fyrir þeim sem næst þeim standa hvernig á svona megi standa,“ sagði Þorsteinn.

Þá sagði hann að ein helsta orsök mansals, líkt og það sé skilgreint erlendis, tengist vændisstarfsemi og að slík starfsemi tengist oftar en ekki klúbbum sem hér séu reknir undir nafninu kampavínsklúbbar. Hins vegar reynist sönnunarbyrði í þeim málum afskaplega erfið. Engu að síður þurfi að stemma stigu við starfsemi þessara klúbba.

„Vegna þess að ég einfaldlega tel að það sem sagt er að klúbbarekstur af þessu tagi sé óaðskiljanlegur hluti af ferðamennsku þá held ég hreint út að svona ferðamennska sé okkur Íslendingum ekki að skapi. Ég held ekkert endilega að okkur langi til þess að fá einstaklinga sem sækja í skemmtun af þessu tagi og okkur væru örugglega alveg sama þó þeir væru einhvers staðar annars staðar að svala þeim hvötum,“ sagði Þorsteinn á Alþingi.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×