Sport

Stelpurnar stóðu á tám í fimm mínútur

Anton Ingi Leifsson skrifar
Stelpurnar í dag.
Stelpurnar í dag. Vísir/Andri Marinó
Eins og landinn veit voru íslensku fimleikastelpurnar okkar að keppa á Evrópumótinu í hópfimleikum. Mótið hefur staðið yfir síðan á miðvikudag og því lauk í dag.

Ísland lenti í öðru sæti, 684 stigum á eftir Svíum. RÚV fjallaði um mótið alla vikuna og gerði því góð skil.

Sif Pálsdóttir, fyrirliði og Fríða Rún Einarsdóttir fóru í viðtal til Hauks Harðarsonar og Kristín Hálfdánardóttir, fjölmiðlafulltrúi mótsins, birti þessa mynd á Fésbókarsíðu-sinni.

Borðið var dálítið hátt sem viðtalið var tekið við og þurftu stelpurnar að standa á tám. Sjón er sögu ríkari.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×