Fótbolti

Stelpurnar okkar komnar til Kína

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Sandra Sigurðardóttir, Ásgerður Stefanía Baldursdóttir og Margrét Lára Viðarsdóttir á flugvellinum í Kína.
Sandra Sigurðardóttir, Ásgerður Stefanía Baldursdóttir og Margrét Lára Viðarsdóttir á flugvellinum í Kína. Mynd/Knattspyrnusamband Íslands
Íslenska kvennalandsliðið í fótbolta hefur verið í mikill langferð undanfarinn sólarhring en stelpurnar okkar eru núna komnar til Kína.

Íslenska liðið tekur þar þátt í fjögurra þjóða móti í Kína en leikið verður 20.til 24. október næstkomandi. Íslensku stelpurnar leika þar gegn heimamönnum, Dönum og Úsbekum.

Leikið verður í Chongquing í Kína en borgin er í suðvestur Kína og telur um 18 milljónir íbúa. Íslenski hópurinn flaug fyrst til Stokkhólms í Svíþjóð, svo yfir til Helsinki í Finnlandi og þaðan síðan til Chongquing. Þá beið síðan tveggja tíma rútuferð upp á hótel.

Æfingamótið í Kína markar upphaf af undirbúningi liðsins fyrir úrslitakeppni EM sem fram fer í Hollandi næsta sumar en Danir verða einnig þar á meðal keppenda.  

Kína og Danmörk eru bæði þekkt stærð í knattspyrnuheiminum og eru í 13. og 20. sæti á styrkleikalista FIFA hjá konum.  Minna er vitað um Úsbekistan en landslið þeirra vermdi 42. sætið á síðasta styrkleikalista.

Íslensku stelpurnar eru byrjaðar að undirbúa sig fyrir EM.Mynd/Knattspyrnusamband Íslands


Hópurinn:


Hólmfríður Magnúsdóttir     Avaldsnes

Fanndís Friðriksdóttir     Breiðablik

Hallbera Guðný Gísladóttir     Breiðablik

Berglind Björg Þorvaldsdóttir     Breiðablik

Rakel Hönnudóttir     Breiðablik

Svava Rós Guðmundsdóttir     Breiðablik

Guðbjörg Gunnarsdóttir     Djurgarden

Katrín Ómarsdóttir     Doncaster

Glódís Perla Viggósdóttir     Eskilstuna Utd

Anna Björk Kristjánsdóttir     KIF Örebro

Sif Atladóttir     Kristianstad

Dagný Brynjarsdóttir     Portland Thorns

Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir     Stabæk

Ásgerður St. Baldursdóttir     Stjarnan

Berglind Hrund Jónasdóttir     Stjarnan

Katrín Ásbjörnsdóttir     Stjarnan

Sandra Sigurðardóttir     Valur

Margrét Lára Viðarsdóttir     Valur

Elísa Viðarsdóttir     Valur

Dóra María Lárusdóttir     Valur

Sara Björk Gunnarsdóttir     Wolfsburg

Sandra María Jessen     Þór/KA




Fleiri fréttir

Sjá meira


×