Lífið

Stelpur sem skjóta

Guðrún Ansnes skrifar
Dögg Mósesdóttir kvikmyndagerðarkona og formaður WIFT á Íslandi.
Dögg Mósesdóttir kvikmyndagerðarkona og formaður WIFT á Íslandi. mynd/aðsend
„Hér vantar kvenfyrirmyndir og þess vegna er mikilvægt fyrir okkur að keyra á þetta, og vera sýnilegar fyrirmyndir,“ segir kvikmyndagerðarkonan Dögg Mósesdóttir formaður Wift, Women In Television, sem ásamt kollega sínum, Ásu Helgu Hjörleifsdóttur,fer af stað með sumarnámskeiðinu Stelpur sem skjóta. Um ræðir þriggja vikna námskeið í stuttmyndagerð fyrir stúlkur á framhaldsskólaaldri.

Er verkefnið tilraun til að tækla það ójafna kynjahlutfall sem viðrist loða við fagið, á frumstigi. „Strax á þessum árum eru kvikmyndaklúbbarnir í framhaldsskólunum yfir fullir af strákum og jaðarsetning stúlkna er þannig mjög undirstrikuð. Ætli hlutfall stráka í klúbbunum sé ekki yfirleitt í kringum nítíu prósent. Þetta endurkastast vel í birtingarmyndum kvenna í myndunum sem unnar eru af klúbbunum, þar sem karakterar kvenna eru oftar en ekki mjög einhliða og stemningin svolítið „Gillz-leg“ ef svo má að orði komast,“segir Dögg.

„Skortur á áhuga á kvikmyndagerð þegar kemur að konum er ekki vandamálið, því það hefur sýnt sig að um leið og við höfum kallað eftir konum og búið til rými fyrir þær þær, þá koma þær í hrönnum. Við eigum mikið til af hæfileikaríkum konum á sviði kvikmynda, sem eru duglegar við að skrifa handrit og fleira, en einhverra hluta vegna festast þau ofan í skúffum,“ útskýrir Dögg.

Ása Helga Hjörleifsdóttir kvikmyndagerðarkonamynd/aðsend
Segir hún námskeiðið eiga að miða að því að stelpurnar átti sig á að þeim megi mistakast, þær geti prófað og þurfi ekki að vera með allt hundrað prósent til að geta látið vaða.

„Námskeiðið er samstarfsverkefni WIFT á Íslandi, RIFF og Kvikmyndaskóla Íslands. Við horfum til stelpna á aldrinum fimmtán til tuttugu ára, en RIFF er svo með sambærilegt námskeið fyrir stelpur á grunnskóla aldri. Við ætlum að kenna stelpunum undirstöðu atriðin og munu þær vinna stuttmyndir sem svo verða allar sýndar á RIFF í haust,“ upplýsir Dögg og bætir við að þær séu hvattar til að segja sögur sínar í gegnum myndirnar, þar sem þær leiti í sinn eigin reynsluheim.

„Með því að skapa vettfang fyrir stelpurnar til að vinna saman, er verið að búa til flöt fyrir mikilvæg tengsl sem geta reynst stelpunum dýrmæt, bæði til lengri og skemmri tíma. Að auki geta þær svo alltaf leitað til okkar eftir að námskeiðum lýkur. Það gæti verið að þetta sé upphafið að lausninni,“ segir Dögg í lokin.


Tengdar fréttir

Kvikmyndasjóður er fjárfestingarsjóður

Kvikmyndahátíðin Stockfish hefst í dag og Guðrún Edda Þórhannesdóttir framleiðandi segir að á hátíðinni sé að finna allt það besta sem evrópsk kvikmyndagerð hefur að bjóða auk þess að auðga tengslanet íslenskra kvikmyndagerðarmanna svo um munar.

Fjörtíu þjóðerni á RIFF

Búist er við að um þrjátíu þúsund manns sæki RIFF – árlega Alþjóðlega kvikmyndahátíð í Reykjavík sem hefst í næstu viku og munu á annað hundrað erlendir gestir mæta til hátíðarinnar. Dagskráin var kynnt í Tjarnarbíó í dag.

Kynjakvótar í kvikmyndagerð

Friðrik Þór óttast að illa fari í hinum viðkvæma bíóbransa ef kynjaðar forsendur eiga að ráða för; kynjakvótakrafan er sett fram á fölskum forsendum.

Vantar sterkari kvenpersónur: Fyrirmyndirnar mega alveg vera óþekkar

Geena Davis hefur lengi barist fyrir jafnara kynjahlutfalli í kvikmyndum og sjónvarpsefni. Eingöngu 17% persóna í barnaefni eru kvenkyns. Geena segir það hafa áhrif á sjálfsmynd stúlkna enda læri þær fljótt að taka ekki sinn skerf af plássinu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×