Sport

Stelpan sem stingur strákana af | Myndband

Gordon er hér með sjálfum Snoop Dogg.
Gordon er hér með sjálfum Snoop Dogg. vísir/getty
Hin 11 ára gamla Sam Gordon heldur áfram að gera strákunum lífið leitt í bandaríska ruðningnum.

Stelpan sló í gegn fyrir tveim árum síðan og varð svo vinsæl að hún fékk mynd af sér á Wheaties-kassa.

Eftir allar vinsældirnar hætti hún í ruðningnum og snéri sér að knattspyrnu. Hún er aftur á móti mætt aftur í ruðninginn og hefur aldrei verið betri.

Hún er eina stelpan í sinni deild og er langbest. Hún hleypur 13 metra að meðaltali í hverju hlaupi sem er magnað. Skal engan undra að hún sé kölluð Sam „Sweet feet" Gordon.

Strákarnir gefa henni samt ekkert ókeypis og tækla hana fast þá sjaldan þeir ná henni. Einnig spilar hún frábæra vörn.

Öll þessi ótrúlegu tilþrif frá henni í vetur má sjá á myndbandinu hér að neðan.

NFL



Fleiri fréttir

Sjá meira


×