Innlent

Stekkjastaur kom til byggða í strætisvagni

Stefán Árni Pálsson skrifar
Stekkjastaur tók strætó í morgun.
Stekkjastaur tók strætó í morgun. vísir/vilhelm
Í morgun kom Stekkjastaur í strætisvagni til byggða og heimsótti leikskólabörn á leikskólanum Álfaheiði í Kópavogi.

Jólasveinninn fór með börnin í stuttan bíltúr, sungu jólalög og krakkarnir skreyttu strætisvagninn að innan.

Heimsóknin var hluti af jólaverkefni Strætó þar sem 2.554 leikskólabörn frá 73 leikskólum sendu inn jólateikningar í ár sem límdar hafa verið á strætisvagna borgarinnar.

vísir/vilhelm
vísir/vilhelm
vísir/vilhelm
vísir/vilhelm
vísir/vilhelm
vísir/vilhelm
vísir/vilhelm



Fleiri fréttir

Sjá meira


×