Handbolti

Steinunn inn fyrir Ástu

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Stelpurnar mæta Póllandi í vináttulandsleik seinna í dag.
Stelpurnar mæta Póllandi í vináttulandsleik seinna í dag. vísir/valli
Steinunn Hansdóttir, leikmaður Skanderborg í Danmörku, hefur verið kölluð inn í íslenska landsliðið í handbolta í stað Ástu Birnu Gunnarsdóttir sem er meidd.

Steinunn, sem hefur búið í Danmörku frá barnsaldri, hefur leikið sex landsleiki og skorað í þeim 10 mörk.

Íslenska landsliðið er statt í Póllandi þar sem það leikur tvo vináttuleiki við heimakonur. Fyrri leikurinn er í dag en sá seinni á morgun.

Leikirnir eru liður í undirbúningi fyrir leikina gegn Svartfjallalandi í umspil um sæti á HM í Danmörku í desember. Fyrri leikurinn er í Svartfjallalandi 7. júní og sá síðari viku seinna í Laugardalshöll.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×