Innlent

Steingrímur og Jóhanna: Engan bilbug á okkur að finna

Jóhanna Sigurðardóttir.
Jóhanna Sigurðardóttir.

„Það er engan bilbug að finna á okkur," sagði Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra, þegar hann var spurður í viðtali á RÚV hvort það hrikti í stoðum stjórnarsamstarfsins.

Jóhanna Sigurðardóttir tók undir orð Steingríms og svaraði aðspurð að niðurstaðan væri ekki áfall miðað við stöðu mála þar sem betri samningur lá fyrir.

Þá sagði Steingrímur að kjörsóknin hefði verið bágborin en sjálfur kaus hann ekki líkt og Jóhanna.

90 prósent þjóðarinnar hafnaði samningnum samkvæmt fyrstu tölum. Já sögðu 1,6 prósent en þau atkvæði námu rétt rúmlega þúsund við fyrstu talningu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×