Lífið

Steindi, Björn Bragi og hinn ógurlegi Candyman

Kjartan Atli Kjartansson skrifar
Steindi og Björn Bragi bregða á leik.
Steindi og Björn Bragi bregða á leik.
Steindi Jr sendi frá sér nýtt Vine-myndband í kvöld. Þar leikur félagi hans, Björn Bragi Arnarsson hinn fræga Candyman úr samnefndri hrollvekju sem var vinsæl á tíunda áratug síðustu aldar.

Í myndunum sögðu fórnarlömb Candyman nafn hans fimm sinnum fyrir framan spegilinn. Þá birtist hann og endaði það yfirleitt með ósköpum.

Í Vine-myndbandinu sem Steindi sendi frá sér í kvöld segir hann nafn Björns Braga fimm sinnum fyrir framan spegilinn og við það birtist Björn fyrir aftan hann, eins og Candyman gerði forðum daga.

Félagarnir eru í bol merktum Dóra DNA. Þeir eru búnir að vera saman í dag að steggja kappann sem giftir sig síðar í haust.

Myndbandið má sjá hér að neðan.


Tengdar fréttir

Dóri DNA og Seppi "böttluðu“ fyrir utan Bónus í Mosó

Dóri og Seppi, einnig þekktur sem Elvar Gunnarsson, voru meðal fremstu "battlara“ íslensks rapps fyrir um áratug síðan. Þeir tóku báðir þátt í keppninni Rímnastríð sem var einskonar Íslandsmót í "battli“. Seppi vann keppnina árið 2002 og Dóri árið 2004.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×