Matur

Steiktur humar með ólífusalsa, avókadó og grilluðu súrdeigsbrauði

Eyþór Rúnarsson skrifar
Vísir

Eyþór Rúnarsson meistarakokkur gefur lesendum hér uppskrift að girnilegum humarrétti sem hann hristi fram úr erminni í þætti sínum Eldhúsinu hans Eyþórs á Stöð 2.

Rétturinn er vonum framar bragðgóður og einfaldur í gerð.

Steiktur humar með ólífusalsa, avókadó og grilluðu súrdeigsbrauði

Ólífusalsa

100 g steinlausar ólífur í olíu

½ fínt skorinn rauðlaukur

1 stk. gul paprika fínt skorin

1 msk. fínt skorið rautt chili

½ stk. hunangsmelóna (skorin í litla teninga)

2 msk. fínt skorin ítölsk steinselja

2 msk. sítrónusafi

100 ml extra virgin ólífuolía

sjávarsalt

hvítur pipar úr kvörn



Skerið ólífurnar í fernt og setjið í skál með öllu hinu hráefninu.

Smakkið til með salti og pipar.



Humar og súrdeigsbrauð

2 stk. fullþroskuð avókadó

12 stk. pillaðir stórir humarhalar

4 stk. súrdeigbrauðsneiðar

½ sítróna

Ólífuolía

Sjávarsalt

Hvítur pipar úr kvörn

Skerið avókadóið í tvennt, takið steininn úr því og skafið allt innan úr því með matskeið.

Setjið á disk og kreistið safann úr sítrónunni yfir avókadóið, stappið allt saman með gaffli og smakkið til með saltinu og piparnum.

Hitið pönnu með ólífuolíu og steikið humarinn í ca. 2 mín á hvorri hlið.

Penslið súrdeigsbrauðið með ólífuolíu og grillið það á grillpönnu í ca. 1 mín á hvorri hlið. Kryddið brauðið með salti og pipar.

Smyrjið avókadómaukinu yfir brauðið og raðið steikta humrinum ofan á brauðið og setjið ólífusalsað yfir.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×