Innlent

Steig á bensínið í stað bremsu og skemmdi þrjá bíla

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Lögreglustöðin í Keflavík.
Lögreglustöðin í Keflavík. Vísir/Vilhelm
Ökumaður í Keflavík var heldur hægri sinnaður þegar hann ætlaði að stíga á bremsuna við biðskyldumerki í gær. Ökumaðurinn steig óvart á bensíngjöfina með þeim afleiðingum að bifreið hans snérist í hálfhring, fór yfir vegg og hafnaði á kyrrstæðri bifreið sem þar hafði verið lagt á bílastæði.

Talsvert tjón varð á bifreiðunum og þurfti kranabíl til að fjarlægja tvær þeirra af vettvangi.

Í morgun varð svo annað óhapp með sama hætti þegar ökumaður var að leggja bifreið sinni í stæði og steig á bensíngjöfina í stað bremsunnar með þeim afleiðingum að hann ók á aðra bifreið. Þetta kemur fram í skýrslu lögreglunnar í Keflavík.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×