Viðskipti erlent

Stefnu vegna Kaupþings lögsóknar Vincent Tchenguiz vísað frá dómi

ingvar haraldsson skrifar
tefna sem Vincent Tchenguiz lagði fram í máli sem hann hefur höfðað gegn endurskoðendafyrirtækinu Grant Thornton var vísað frá dómi í síðustu viku.
tefna sem Vincent Tchenguiz lagði fram í máli sem hann hefur höfðað gegn endurskoðendafyrirtækinu Grant Thornton var vísað frá dómi í síðustu viku. vísir/daníel
Stefnu sem Vincent Tchenguiz lagði fram í máli sem hann hefur höfðað gegn endurskoðendafyrirtækinu Grant Thornton var vísað frá dómi í síðustu viku. The Telegraph greinir frá. 

Tchenguiz hefur lögsótt slitastjórn Kaupþings, Grant Thornton og tengda einstaklinga vegna rannsóknar bresku efnahagsbrotadeildarinnar, SFO, á viðskiptum Tchenguiz við Kaupþing áður en bankinn féll. 

Tchenguiz krefst ríflega 2,2 milljarða punda, um 450 milljarða íslenskra króna. Upphæðin nemur um helmingi af eignum þrotabús Kaupþings. Rannsókn SFO var hætt og Tchenguiz fékk greiddar bætur frá SFO vegna málsins.



Sjá einnig: Krefst helmings af eignum Kaupþings


Dómarinn sagði málatilbúnað Tchenguiz of langan og óskýran. Hámarkslengd stefnu fyrir breskum dómstólum er 25 blaðsíður nema dómari samþykki annað segir í frétt The Telegraph. Stefna Tchenguiz var 94 blaðsíður.

Dómarinn sagði stefnuna innihalda 50 blaðsíðna frásögn sem væri uppfull af órökstuddum ásökunum um svik og óheiðarleika. Tchenguiz fékk þrjár vikur til að leggja fram nýja stefnu í málinu.

Tchenguiz gæti tapað fasteignafélagi sínu

Tchenguiz á í hættu að tapa fasteignaveldi sínu eftir að fasteignafélag hans, Proxima, greiddi ekki ríflega 435 milljónir punda skuld, jafnvirði um 89 milljarða íslenskra króna, sem var á eindaga í desember.

Proxima á ríflega 60.000 eignir á Bretlandi. Tchenguiz hafnaði að endursemja um lán félagsins seint á síðasta ári samkvæmt heimildum The Sunday Times. Tchenguiz gæti þurft að endurfjármagna skuldir Proxima. Lánadrottnar Proxima, Prudential og Bank of America, gætu einnig farið fram á að félagið seldi fasteignir upp í skuldir eða lýst félagið gjaldþrota.


Tengdar fréttir

Krefst helmings af eignum Kaupþings

Krafa Vincents Tchenguiz á hendur Kaupþingi, Grant Thornton og fleiri aðilum nemur um 54 prósentum af heildareignum Kaupþings. Upphæðin er um fimmtán prósent af samþykktum kröfum slitabúsins. Málið verður höfðað í Bretlandi.

Kannast ekki við kröfu Tchenguiz

Slitastjórn Kaupþings segir hvorki bankann né Jóhannes Rúnar Jóhannsson hafa fengið gögn eða upplýsingar um kröfu Vincent Tchenguiz.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×