Innlent

Stefnt á að sjálfboðaliðar vinni 250 vinnuvikur

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Þótt það rigndi í Stangarhálsi voru sjálfboðaliðar sáttir við vinnu.
Þótt það rigndi í Stangarhálsi voru sjálfboðaliðar sáttir við vinnu.
Sjálfboðaliðar á vegum Vina Þórsmerkur munu halda áfram í sumar við endurbætur og viðhald á stígum í Þórsmörk. Sérstök áhersla verður lögð á Valahnúk vestanverðan og Tindfjallahringinn. Einnig verður unnið á svæðinu þar sem Laugavegurinn kemur inn í Þórsmörk og á Fimmvörðuhálsleiðinni upp úr Þórsmörk.

„Það er viðhald á stígum og við erum að beina vatninu þannig að það renni ekki eftir stígunum og valdi jarðvegsrofi,“ útskýrir Hreinn Óskarsson hjá Vinum Þórsmerkur, en hann vinnur einnig hjá Skógræktinni sem haft hefur umsjá með Þórsmörk síðan 1920. Þá er verið að gera tröppur á hættulegustu stöðunum. „Það eru nokkur svæði þar sem hefur þurft að gera alvöru tröppur sem falla inn í landið og sjást varla,“ segir hann.

Hreinn segir að áfram verði haldið að endurnýja stikur á öllum leiðum. „Það verður númer hjá hverri stiku og við tökum hnitin á hverri stiku þannig að ef fólk lendir í vandræðum hjá þessum stikum, hvort sem það villist eða slasast, þá verður hægt að láta björgunarsveitir vita númerið á viðkomandi stiku,“ segir Hreinn. Með þessu móti þurfi ekki að senda út fjölmennt björgunarlið til að leita þegar fólk lendir í vanda, heldur nægi að senda smærri hópa.

Viðhald á svæðinu er meira og minna unnið af sjálfboðaliðum og er áætlað að í sumar verði hægt að vinna 250 vinnuvikur. Þessi vinna hefur verið í gangi í hartnær 30 ár en aukinn kraftur var settur í hana eftir Eyjafjallajökulsgosið, þegar ferðamönnum fór að fjölga verulega.

Á morgun, sunnudag, verður háfjallakvöld í Eldborgarsal í tilefni af 90 ára afmæli félagsins. Þar halda tveir fremstu fjallgöngumenn okkar tíma fyrirlestra. Gerlinde Kaltenbrunner, sem er fyrsta konan til að ganga á 14 hæstu tinda heims án viðbótarsúrefnis, og Peter Habeler, sem varð ásamt félaga sínum fyrstur til að ná á topp Everest án viðbótarsúrefnis.

Aðgöngumiðinn kostar 1.000 krónur og rennur ágóði af honum beint í verkefni Vina Þórsmerkur. 

Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu




Fleiri fréttir

Sjá meira


×