Stefnir í að lögreglumönnum fækki í maí 30. apríl 2009 05:30 Lögreglumönnum á höfuðborgarsvæðinu var fjölgað tímabundið um 20 manns í janúar. Ekki hefur fengist fjárveiting til að endurráða lögreglumennina.Fréttablaðið/Vilhelm
Lögreglustjórinn á höfuð-borgarsvæðinu hefur tilkynnt 20 lögreglumönnum sem ráðnir voru tímabundið í janúar síðastliðnum að samningar þeirra verði að óbreyttu ekki endurnýjaðir þann 15. maí. Lögreglumennirnir voru ráðnir með sérstakri fjárveitingu í janúar, þegar svokölluð búsáhaldabylting stóð sem hæst. Ráðningarsamningar lögreglumannanna hafa verið endurnýjaðir tvisvar síðan. Fáist ekki aukin fjárveiting fækkar starfandi lögreglumönnum á höfuðborgarsvæðinu því um 20 um miðjan maí. Í dag eru um 300 lögreglumenn starfandi hjá embættinu, þar af um 100 sem ganga vaktir. „Við höfum gert ráðuneytinu grein fyrir stöðunni, eins og við höfum gert frá áramótum,“ segir Stefán Eiríksson, lögreglustjóri á höfuðborgarsvæðinu. Hann segir að til þessa hafi engin viðbrögð komið frá ráðuneytinu, en segir ráðherra hafa skilning á þörf embættisins fyrir þessa starfsmenn. Það segir sig sjálft að óheppilegt er að fækka lögreglumönnum, og að brotthvarf svo margra mun auka byrðar annarra lögreglumanna, segir Stefán. Málið er nú til skoðunar innan dómsmálaráðuneytisins, segir Ragna Árnadóttir dómsmálaráðherra í tölvubréfi til Fréttablaðsins. Hún segir lögreglumennina 20 hafa sent sér erindi vegna málsins, auk þess sem lögreglustjóri hafi tekið málið upp. Ragna segir að tekin verði ákvörðun í þessu máli í kjölfar fundar með lögreglustjóra höfuðborgarsvæðisins í kringum mánaðamót. Þar verði farið yfir fjármál embættisins í heild sinni. „Við höldum í vonina að það finnist einhverjir peningar,“ segir Arinbjörn Snorrason, formaður Lögreglufélags Reykjavíkur. Það mun breyta miklu fyrir aðra lögreglumenn hverfi 20 félagar þeirra frá störfum, segir Arinbjörn. Álagið muni þá dreifast á færri herðar. Þá sé óvissan auðvitað erfið fyrir lögreglumennina sem nú stefnir í að missi vinnuna. „Við munum vinna í því að það fáist fjármagn til þess að halda þeim áfram inni. Það er auðvitað ólíðandi fyrir þetta fólk að búa við þetta óvissuástand,“ segir Arinbjörn. Stefán Eiríksson segir aðspurður að engir sumarafleysingamenn verða ráðnir hjá Lögreglu höfuðborgarsvæðisins í ár, ekki frekar en síðasta sumar. brjann@frettabladid.is
Mest lesið Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði Innlent Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Innlent Vaxtaplanið sé tímaskekkja Innlent Aðalsteinn hleypur í skarðið Innlent Þurfi frekar að gera meira fyrir konurnar heldur en að skrímslavæða þær Innlent „Börn eiga aldrei að borga fyrir gjörðir foreldra sinna“ Innlent „Það þarf nú ansi mikið að ganga upp“ Innlent Fallið frá þróun nýrrar samevrópskrar herþotu Erlent Magga Friðriks leitar til almennings eftir stuðningi Innlent Marius látinn laus Erlent Fleiri fréttir Vægari úrræði ættu að koma á undan vistun fjölskyldna í brottfararstöð Rafvarnarvopn kom við sögu þar sem tilkynnandi um brot var handtekinn Vaxtaplanið sé tímaskekkja Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði „Það þarf nú ansi mikið að ganga upp“ Þurfi frekar að gera meira fyrir konurnar heldur en að skrímslavæða þær Aðalsteinn hleypur í skarðið „Börn eiga aldrei að borga fyrir gjörðir foreldra sinna“ Vilhjálmur sagði af sér þingmennsku Andmæla fundarboði aðalfundar Sósíalista Konukot og börn í brottfararstöð í brennidepli í kvöldfréttum Séra Guðni Már kveður Ísland Magga Friðriks leitar til almennings eftir stuðningi „Svaraðu spurningunni“ Sérsveitaraðgerð á Eskifirði Tjón upp á hundrað milljónir og eldsupptök ráðgáta Nær tvöföldun umsókna um meistaranám „Beinin af Jónasi skipta andskotans engu máli“ Verðlaunuðu Evrópusinna fyrir að sporna gegn óreiðu Leit að arftaka Höllu Bergþóru hafin: „Kemur í ljós“ Eldur í vinnuvél á Álfsnesi Vildi vita hvort varnarsamningi við Bandaríkin yrði teflt í tvísýnu með ESB-viðræðum Enn í lífshættulegu ástandi Lýsingar á ófremdarástandi við Konukot komi á óvart ESB á Alþingi, Konukot og sáttur Bubbi Samkomulag um landaheitið Ísland undirritað „Grundvallaratriði í rekstri að fólk komist til og frá“ Eftirlýstur hrækti á starfsmann skemmtistaðar og lögreglu Drengurinn fannst heill á húfi Sjá meira