Innlent

Stefndi í að Te & Kaffi í Kringlunni yrði sektað vegna Kvennafrídagsins

Anton Egilsson skrifar
Það varðar sektum að loka búðum í Kringlunni. Jafnvel þó það sé Kvennafrídagur.
Það varðar sektum að loka búðum í Kringlunni. Jafnvel þó það sé Kvennafrídagur. Vísir/Valli/Stefán/Ernir
Framkvæmdastjóri Kringlunnar segir að engum verslunum hafi þurft að loka í dag að hans vitund. Það sé ekki heimilt samkvæmt þeim skilmálum sem aðilar gangast undir sem koma inn í Kringluna.

Te & Kaffi lokaði helmingi staða sinna á þriðja tímanum í dag í tilefni Kvennafrídagsins svo starfsmenn af kvenkyni gætu mætt á samstöðufund á Austurvelli. Til stóð að loka staðnum í Kringlunni í dag þar til forsvarsmenn kaffihúsakeðjunnar voru minntir á samning sinn við eigendur Kringlunnar.

„Það er bara hluti af því að virða þær reglur sem gilda um það,“ segir Sigurjón Örn Þórsson, framkvæmdastjóri Kringlunnar. Loki verslanir í Kringlunni þurfa þær að greiða sektir. Þeim tókst þó öllum að halda starfsemi gangandi í dag þrátt fyrir samstöðufundinn.

„Ég veit til þess að það var fullt af konum sem fóru úr Kringlunni í dag og sóttu samstöðufundinn. Það er þá eigenda og rekstraraðila að tryggja það að verslanir og þjónusta og veitingastaðir séu áfram opnir.“







Sigurjón Örn Þórsson, framkvæmdarstjóri Kringlunnar.Vísir
Náðu að manna staðinn með strákum

Aðspurður segist Sigurjón hafa fengið eina tilkynningu frá rekstaraðila í Kringlunni að fyrirtækið hygðist loka fyrr í dag vegna Kvennafrídagsins.

„En það varð ekkert úr því. Ég átti spjall við hann og rifjaði upp með honum hvaða reglur hann hefði gengist undir og hann svo sem áttaði sig á því og tryggði það að staðurinn hjá honum var áfram opinn.“

Halldór Guðmundsson, framkvæmdastjóri Te & Kaffi, segir að fyrirtækið hafi hvatt allar konur til að fara fyrr í dag og mæta á samstöðufundinn. Helmingi staðanna hafi verið lokað fyrr og það hafi verið uppleggið í Kringlunni líka, enda konur um 80% starfsmanna fyrirtækisins og hlutfallið enn hærra í Kringlunni.

Þeir hafi hins vegar verið minntir á samninga sína við Kringluna og þurft að taka til sinna ráða.

„Að lokum náðum við að manna staðinn með strákum,“ segir Halldór ánægður með að tekist hafi að leysa úr málinu.

 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×