Sport

Stefnan er sett á gullið

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Helgi Sveinsson og Arnar Helgi á blaðamannafundinum í gær.
Helgi Sveinsson og Arnar Helgi á blaðamannafundinum í gær. vísir/stefán
HM fatlaðra fer fram í Doha í Katar dagana 21.-31. október og Ísland sendir tvo þátttakendur á mótið. Þeir eru spjótkastarinn Helgi Sveinsson og Arnar Helgi Lárusson sem keppir í hjólastólaspretti.

Hinn 36 ára gamli Helgi ætlar sér stóra hluti sem fyrr en hann er ríkjandi heims- og Evrópumeistari í flokki F42. Í Doha verður í fyrsta skipti keppt í sameiginlegum flokki F42, 43 og 44.

„Ég verð kominn út ellefu dögum fyrir keppni og fæ tíma til þess að venjast hitanum sem betur fer,“ segir Helgi.

„Markmiðin mín hafa alltaf verið fyrsta sætið og ég hef aldrei farið leynt með það. Stefnan er sett á gull og ekkert annað.“

Helgi tvíbætti heimsmetið í upphafi sumars og er sífellt að bæta sig. Hvað getur hann kastað langt?

„Ég er búinn að æfa mjög vel upp á síðkastið. Spjótkast er aftur á móti furðuleg íþrótt. Það er hægt að vera í mjög góðri þjálfun en kasta illa. Þetta snýst um að hitta inn á rétta kastið. Ég tel mig eiga það kast inni alveg klárlega. Bætingin er þarna einhvers staðar ef ég næ að tengja alla hlutina hjá mér.“

vísir/stefán
Er Helgi bætti heimsmetið í maí kastaði hann yfir 54 metra en um mánuði síðar var hann búinn að kasta 57,36 metra sem er núverandi heimsmet. Hann á sér draum um að kasta ákveðna vegalengd.

„Markmið mitt hefur alltaf verið að kasta yfir 60 metra. Ég hef verið lygilega nálægt því á æfingum. Ég hef verið að kasta alveg á 60 metra línuna þannig að ég veit vel að ég get það. Þetta er þarna og ég verð að hitta á það.“

Áfram verður keppt í þessum sameiginlega flokki á Ólympíumóti fatlaðra í Ríó næsta sumar.

„Samkeppnin er núna mun harðari en hún hefur nokkurn tíma verið með þessari sameiningu. Þessir strákar í hinum flokkunum eru minna fatlaðir en ég og aflimaðir fyrir neðan hné. Þeir eru að kasta miklu lengra en þeir sem eru í mínum flokki og ég verð því bara að æfa meira og vinna þá,“ segir Helgi.

„Þetta er allt annar leikur og þetta er skemmtileg áskorun.“


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×