Innlent

Stefna að opnun neyslurýma fyrir fíkniefnaneytendur

Kristín Ólafsdóttir skrifar
Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra.
Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra. Vísir/Ernir
Vinna er hafin í velferðarráðuneytinu við undirbúning opnunar á svokölluðum neyslurýmum fyrir langt leidda vímuefnaneytendur. Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra kom verkefninu af stað. Neyslurýmin eru þekkt úrræði erlendis og byggjast á hugmyndafræði skaðaminnkunar, að því er fram kemur í frétt á vef stjórnarráðsins.

Rökin fyrir sérstökum neyslurýmum byggjast á því að þeir sem eiga við mestan vímuefnavanda að etja stunda neyslu sína oft við hættulegar og heilsuspillandi aðstæður, segir enn fremur í fréttinni. Þessar aðstæður valda oft enn meiri skaða en ella og stuðla að veikindum og jafnvel dauða.

Markmiðið með neyslurýmunum er því fyrst og fremst að þeir notendur fíkniefna sem um ræðir geti neytt efnanna við eins mikið öryggi og kostur er.

Sjá einnig: Markmiðið er að lina þjáningar fíkla

„Þetta snýst ekki um að samþykkja neysluna, heldur að viðurkenna að þessir einstaklingar þurfa aðstoð á forsendum sem þeir geta nýtt sér. Þetta snýst um forvarnir og skaðaminnkandi aðgerðir, líkt og Rauði krossinn hefur sinnt í nokkrum mæli með starfsemi Frú Ragnheiðar. Þar er fyrir hendi mikilvæg þekking á þessum málum og ég vonast því eftir góðu samstarfi við Rauða krossinn varðandi undirbúning að opnun sérstakra neyslurýma,“ segir Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra.

Undirbúningur neyslurýmanna hefst nú í kjölfar ályktunar sem samþykkt var á Alþingi í maí árið 2014. Í henni fólst að stefna í vímuefnamálum skyldi endurskoðuð á grundvelli lausnamiðaðra og mannúðlegra úrræða til aðstoðar og verndar neytendum efnanna, aðstandendum þeirra og samfélaginu í heild.

Í vikunni vöktu hjúkrunarfræðingar, sem hafa unnið með vímuefnaneytendum sem sprauta sig, athygli á þörf fyrir opnun neyslurýma í Reykjavík. Þær sögðu reynslu af neyslurýmum erlendis mjög góða og að dauðsföll vegna ofnotkunar þekkist ekki í slíkum rýmum.


Tengdar fréttir

Markmiðið er að lina þjáningar fíkla

Kristján Þór Júlíusson heilbrigðisráðherra segir göfugt markmið að stefna að gjaldfrjálsri heilbrigðisþjónustu. Það sé þó erfitt að bjóða upp á kerfi sem ekki hafi einhverja stýringu á notkun með gjöldum. Hann segist vel geta

Ríki og borg í viðræður um neyslurými fyrir sprautufíkla

Heiða Kristín Helgadóttir, stjórnarformaður Bjartar framtíðar og varaformaður velferðarráðs Reykjavíkurborgar, segir tímabært að skoða aðrar leiðir en farnar hafi verið til að mæta þörfum sprautufíkla. Í því ljósi hafa forsvarsmenn Besta flokksins rætt um þörfina á sérstöku neyslurými fyrir sprautufíkla í Reykjavík. Björk Vilhelmsdóttir, formaður velferðarráðs, telur um færa leið að ræða, að því gefnu að sannað sé að um árangursríka aðferð sé að ræða.

Apótekin hugsanleg neyslurými

Velferðarráðherra og formaður velferðarnefndar Alþingis segja að til greina komi að skoða þörfina á svokölluðu neyslurými fyrir sprautufíkla.

Brýn þörf fyrir neyslurými í Reykjavík

Hjúkrunarfræðingar sem hafa unnið með vímuefnaneytendum sem sprauta sig segja brýnt að opnað verði neyslurými í Reykjavík til að þjónusta þennan jaðarsetta hóp. Mjög góð reynsla er af neyslurýmum erlendis og dauðsföll vegna ofnotkunar þekkjast ekki í slíkum rýmum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×