Innlent

Stefán segir aðstoðarmenn Hönnu Birnu hafa beðið sig um að neita frétt DV

Kjartan Atli Kjartansson skrifar
Stefán Eiríksson, fráfarandi lögreglustjóri, tjáði Umboðsmanni Alþingis að aðstoðarmenn Hönnu Birnu Kristjánsdóttur innanríkisráðherra, þau Gísli Freyr Valdórsson og Þórey Vilhelmsdóttir, hafi haft samband við sig og beðið hann um að neita fréttaflutningi DV um samskipti sín við ráðherra.

Þetta kemur fram í bréfi Umboðsmanns Alþingis til Hönnu Birnu Kristjánsdóttur. Þar segir:

„Í þeirri lýsingu sem höfð er eftir lögreglustjóranum í IV. kafla  hér að framan kemur fram að eftir að DV birti frásögn sína 29. júlí sl. hafi aðstoðarmenn yðar haft samband við hann þar sem þeir óskuðu eftir að hann myndi senda frá sér „einhverja yfirlýsingu um þetta mál þar sem ég ætti að hafna öllu þessu sem þar kom fram.“

Ég óska eftir upplýsingum frá yður hvort þetta sé rétt og hvort þessi samtöl hafi af hálfu aðstoaðrmanna farið fram með vitneskju yðar. Ég minni á að á þessum tíma höfðu báðir aðstoðarmennirnir haft réttarstöðu sakbornings við yfirheyrslur hjá lögreglunni við rannsókn lögreglu á meintri ólögmætri meðferð trúnaðarupplýsinga. Ég óska eftir að þér lýsið afstöðu yðar til þess hvernig þessi samtöl þeirra við lögreglustjórann samrýmast þeirri stöðu sem þeir höfðu við umrædda rannsókn lögreglu og hæfi þeirra til að koma að málum sem starfsmenn ráðuneytisins.“

Fréttin sem umboðsmaður vísar til birtist í DV og á vef blaðsins þann 29. júlí undir fyrirsögninni „Hætti vegna afskipta Hönnu Birnu af lögreglurannsókn“. Þar kemur fram að samkvæmt heimildum DV hafi Hanna Birna „kallað Stefán á teppið.“ Þar segir að hún hafi boðað lögreglustjórann í ráðuneytið og lesið honum pistilinn vegna lögreglurannsóknarinnar á innanríkisráðuneytinu. „Þar beitti Hanna Birna þrýstingi til þess að hafa áhrif á rannsókn málsins en báðir aðstoðarmenn henna eru með réttarstöðu grunaðs manns,“ segir ennfremur í fréttinni.


Tengdar fréttir

Píratar vilja fund um lekamálið

Þingmaður Pírata hefur óskað eftir því að stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd leiti svara við því hvort ráðherra hafi haft óeðlileg afskipti af störfum lögreglunnar.

„Protected by a silver spoon…“

Stefán Eiríksson, fyrrverandi lögreglustjóri, er klár maður eins og hann hefur sannað í Útsvari. Líklega hefur honum þó aldrei tekist betur upp en með birtingu Bítlalagsins Bathroom Window á Twitter í vikunni.

Stefán Eiríksson tvíræður á Twitter

Eitt af uppáhalds Bítlalögum fyrrverandi lögreglustjóra fjallar um mann sem hættir í lögreglunni og samskipti hans við konu með silfurskeið í munni.

Íhuga að leggja fram vantrauststillögu á Hönnu Birnu

Þingmenn stjórnarandstöðunnar íhuga að leggja fram vantrauststillögu á Hönnu Birnu Kristjánsdóttur innanríkisráðherra þegar þing kemur saman í haust. Umboðsmaður Alþingis hefur óskað eftir svörum frá ráðherra varðandi meint afskipti hennar af rannsókn lögreglu á lekamálinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×