Handbolti

Stefán Rafn skoraði tvö í öruggum sigri Löwen gegn Berlín

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Stefán Rafn skoraði tvö.
Stefán Rafn skoraði tvö. vísir/getty
Stefán Rafn Sigurmannsson skoraði tvö mörk í stórsigri Rhein-Neckar Löwen, 34-21, gegn Degi Sigurðssyni og lærisveinum hans í Füchse Berlín í kvöld.

Alexander Petersson var ekki með ljónunum í kvöld sem voru betri frá upphafi til enda og innbyrtu öruggan og sanngjarnan sigur.

Löwen er nú tveimur stigum á eftir Kiel í baráttunni um Þýskalandsmeistaratitilinn. Kiel er með 61 stig og Ljónin 59 stig.

Harald Reinkind var markahæstur hjá Löwen með sjö mörk, en hann er varamaður Alexanders Peterssonar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×