Handbolti

Stefán Rafn markahæstur í stórsigri Löwen

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Stefán Rafn skoraði sex mörk fyrir Löwen í kvöld.
Stefán Rafn skoraði sex mörk fyrir Löwen í kvöld. vísir/getty
Rhein-Neckar Löwen vann stórsigur á Friesenheim í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta í kvöld. Lokatölur 37-21, Löwen í vil.

Með sigrinum jöfnuðu Ljónin Kiel að stigum á toppi deildarinnar en þau eru bæði með 61 stig. Kiel er að leika við Hannover-Burgdorf og staðan í þeim leik er 15-13, Hannover í vil.

Bæði lið eiga einn leik eftir en tapi Kiel fyrir Hannover verður staðan fyrir lokaumferðina ansi áhugaverð.

Löwen var allan tímann með yfirhöndina í leik kvöldsins. Eftir 12 mínútna leik var staðan 8-2 og í hálfleik munaði átta mörkum á liðunum, 16-8.

Löwen byrjaði seinni hálfleikinn svo á 6-1 spretti og náði 13 marka forystu, 22-9. Þegar yfir lauk munaði 16 mörkum á liðunum, 37-21.

Stefán Rafn Sigurmannsson var markahæstur í liði Löwen með sex mörk ásamt norska línumanninum Bjarte Myrhol. Alexander Petterson lék ekki með Löwen í kvöld.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×