Handbolti

Stefán Rafn kominn til Metz

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Stefán Rafn Sigurmannsson hefur keppt á fjórum stórmótum en Bjarki Már Elísson er á sínu fyrsta.
Stefán Rafn Sigurmannsson hefur keppt á fjórum stórmótum en Bjarki Már Elísson er á sínu fyrsta. vísir/eva björk
Stefán Rafn Sigurmannsson, hornamaður hjá danska liðinu Álaborg er mættur til Metz í Frakklandi þar sem hann æfði með íslenska landsliðinu í gær.

Stefán Rafn var ekki valinn í íslenska landsliðið fyrir HM í handbolta, þar sem Guðjón Valur Sigurðsson og Bjarki Már Elísson gegna stöðu vinstri hornamanns í liðinu.

Bjarki Már meiddist hins vegar á æfingamótinu í Danmörku um síðustu helgi og missti af þeim sökum af síðasta leik íslenska liðsins.

Sjá einnig: Þetta er ógeðslega leiðinlegt

Stefán Rafn var því kallaður í hóppinn en óvíst er hvort að hann verði í leikmannahópi Geirs Sveinssonar fyrir leikinn gegn Spánverjum á morgun.

Vignir Svavarsson missti einnig af leik Íslands og Danmerkur um helgina vegna veikinda og er hann enn heima fyrir vegna þessa.

Þá hefur Aron Pálmarsson ekkert spilað með Íslandi í aðdraganda mótsins vegna meiðsla og er óvíst um þátttöku hans. Arnór Atlason og Arnór Hallgrímsson verða þó klárir í slaginn en þeir hafa verið að glíma við meiðsli.


Tengdar fréttir

Aron: Ég er í kappi við tímann

Aron Pálmarsson var svona mátulega brattur eftir æfingu íslenska liðsins í Metz í kvöld. Hann hefur verið stórt spurningamerki fyrir HM og er það enn.

Þetta er ógeðslega leiðinlegt

Aron Pálmarsson kom með íslenska landsliðinu til Metz. Það er ekki enn ljóst hvort hann spilar með landsliðinu á HM. Hann fékk sprautu fyrir um viku sem hann vonast til að hjálpi sér að geta spilað á mótinu.

Geir: Vignir spilar ekki gegn Spánverjum

"90 prósent af 18 manna hópnum er í fínu standi,“ sagði Geir Sveinsson landsliðsþjálfari eftir æfingu karlalandsliðsins í Metz í dag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×