„Þetta er gjörsamlega fráleitt. Þetta er ótrúlega ósmekklegur kveðjuhrekkur af hálfu Kristjáns," segir Stefán Pálsson, formaður Samtaka hernaðarandstæðinga um ákvörðun Kristjáns l. Möllers, fráfarandi samgöngu- og sveitastjórnarráðherra, að veita flugmálastjóra heimild til að hefja undirbúning á skráningu loftfara fyrir hollenska fyrirtækið ECA Program Limited hér á landi.
Um er að ræða fyrirtækið sem aðstoðar við þjálfun flugmanna á herþotum. Samtökin líta svo á að tilgangur fyrirtæksins sé að þjálfa hermenn til þess að verða færari í sínu starfi.
„Þetta er starfsemi sem yrði einstök í heiminum," segir Stefán sem bendir á að tilgangurinn er að vera með herþotur líkar þeim sem þjóðir þriðja heimsins hafa yfir að búa (t.d. Íran o.þ.h.) til að leika óvinina á heræfingum.
„Ástæðan fyrir því að hingað er leitað er ekki vegna þess að einhver skemma hafi verið laus heldur sú að menn sjá fram á það að hér séu örvæntingafullir og auðblekktir stjórnmálamenn sem samþykki svona lagað enda gerir það enginn annar," segir Stefán ómyrkur í máli.
Hann segir þoturnar lítið annað en hentifánaherþotur sem brjóti á öllum mórölskum sjónarmiðum þjóða. Hann segir ákvörðunina fullkomlega siðferðislega ranga.
„Ofan á allt saman þá er það á huldu hver á þetta fyrirtæki. Það vantar í raun allar upplýsingar um fyrirtækið. Jafnvel herra Google, sem þekkir ansi marga, kannast ekki við þetta ef fréttasíður Víkurfrétta og Morgunblaðsins eru frátaldar," segir Stefán og bætir við: „Og ef menn hafa lært eitthvað af skúffuumræðunni þá er þetta ljómandi gott dæmi um óljóst eignarhald."
Vísir sagði frá því fyrr í dag að ákvörðun Kristjáns hefði komið ráðherrum VG í opna skjöldu. Ríkisútvarpið greindi frá því í hádeginu að samkomulag hefði náðst á milli ráðherra VG og Samfylkingarinnar um málið. Það er rangt samkvæmt heimildum Vísis og er yfirlýsingar þess eðlis að vænta síðar í dag.