Innlent

Stefán kveður lögregluna í dag

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Stefán Eiríksson lögreglustjóri
Stefán Eiríksson lögreglustjóri
Stefán Eiríksson lögreglustóri hefur störf sem sviðstjóri velferðarsviðs Reykjavíkurbogar á morgun. Samkvæmt ákvörðun bogarráðs er hann ráðinn frá 1. september. Stefán hefur starfað sem lögreglustjóri höfuðborgarsvæðisins frá árinu 2007.

Samstarfsmenn Stefáns vekja athygli á vistaskiptum hans á fésbókarsíðu lögreglunnar í dag. „Það er með mikilli eftirsjá sem starfsmenn Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu kveðja Stefán, en hann hefur áunnið sér traust og virðingu þeirra og verið afar virtur og vinsæll í starfi, ‟ segir þar.

Sigríður Björk Guðjónsdóttir, lögreglustjóri á Suðurnesjum, tekur við starfi Stefáns.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×