Sport

Stefán í níunda sæti afrekalistans

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Mynd/Twitter
FH-ingurinn Stefán Velemir bætti sinn besta árangur í kúluvarpi er hann kastaði 17,24 m á móti í Kaplakrika í gær.

Þetta er í annað sinn á viku sem hann bætir sitt besta en kast Stefáns í gær var aðeins sex sentímetrum frá Íslandsmeti Óðins Bjarnar Þorsteinssonar í flokki 20-22 ára innanhúss.

Íslandsmetið í greininni utanhúss er 21,26 m og hefur verið í eigu Péturs Guðmundssonar í 25 ár. Kast Stefáns í gær setur hann þó í flokk með bestu kúluvörpurum Íslands og í níunda sæti afrekalista Frjálsíþróttasambandsins.

Fjölmargir bættu sinn besta árangur á móti FH-inga eins og lesa má um hér.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×